Heimilisritið - 01.06.1951, Síða 21

Heimilisritið - 01.06.1951, Síða 21
Rósa svaraði lágt og með titr- andi rödd: „Ég sagðist ekki vita neitt um það.“ Barnið vaknaði og byrjaði að gráta í vöggunni. Terry slagaði að rúminu, þar sem konan lá, og laut ógnandi niður að henni. Áfengisvíman gerði hann skeyt- ingarlausan um allt. „Taktu nú eftir,“ sagði hann, „þessi snuðrari hafði rétt fyrir sér. Ég er glæpamaður og þú ert glæpamannskona. Skilurðu það? Þú ert gift glæpamanni. Og ef þessi náungi kemur aftur til að snuðra, þá heldurðu þér saman, skilurðu það? Eða á ég að —" Barnið grét enn hærra en áður, og Terry sneri sér við gramur. Frá sér af ofsa greip hann mjólkurflösku af borðinu og hóf hana á loft. Óp Rósu blandaðist brothljóðinu, þegar hann fleygði frá sér flöskunni af öllu afli. Hann hafði einungis í hyggju að láta.í ljós gremju sína með því að mölva flöskuna á veggn- um. En hann varð þegar næst- um algáður, er hann tók eftir grunsamlegri þögn frá vögg- unni. Rósa spratt snöktandi fram úr rúminu og að vögg- unni. Terry laut niður að henni — hann stóð á öndinni. Hún reis upp og leit á hann. „Þú hefur drepið hann!“ sagði hún með óhugnanlegri ró. „Þú hefur drepið barnið mitt.“ GLERBROT hafði lent á enni barnsins. Hann sá blóðið renna niður hvítt andlit drengsins — hann starði á lokuð augu hans og fíngerð augnhárin fyrir of- an mjúkar kinnarnar. Það fór um hann krampakenndur skjálfti. „Nei!“ hrópaði hann. „Hann er ekki dáinn, Rósa. Það er ekkert alvarlegt. Nú skal ég hlaupa eftir lækni. Gættu hans bara — á meðan.“ Hann hljóp eftir lækni, sem kom að vörmu spori. Hann hafði rétt fyrir sér. Barnið var ekki hættulega meitt. Aðeins svöðusár, sagði læknirinn. Hann saumaði það saman. Það var engin hætta á ferðum. Þegar snáðinn var sofnaður í vöggu sinni — það var tekið að birta af degi — íhugaði Terry taflstöðuna. Já, einmitt — snuðrararnir voru þá á hnot- skóg eftir honum! Sei, sei! Og Rósa vissi hvers kyns var. Hann fór út til að hugsa málið nán- ar. Þegar hann kom aftur eftir nokkra klukkutíma, var Rósa farin. Það kom honum ekki á óvart. Þó hann hefði ekki bein- línis séð það fyrir. Vaggan var HEIMILISRITIÐ 1!)

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.