Heimilisritið - 01.06.1951, Side 29

Heimilisritið - 01.06.1951, Side 29
Það var stúlkart hans Örstutt smásaga eftir Josef Robert Harrer ÉG STÓÐ niðri á torgi og var að bíða eftir strætisvagnin- um mínum, þegar Fritz kom ask- vaðandi. Hann sá mig og kall- aði: „Hæ, Róbert, þetta var heppni! Þú verður að gera mér greiða. Vonandi hefurðu tíma“. „Ég lief alltaf tíma afgangs handa þér. Hvað er að?“ „Eiginlega er það indæll greiði, að því er þig snertir, sem ég ætla að biðja þig um. Ég á að hitta dásamlega stúlku“. „Er hún falleg?“ „Já, áreiðanlega. Eg þekki hana að vísu ekki ennþá. Við komumst í samband gegnum auglýsingu, sem ég lét í eitt dag- blaðið. Satt að segja auglýsti ég eftir að kynnast stúlku, sem ég gæti farið' með í kvikmyndahús, leikhús, ferðalög o. s. frv. — Eft- ir fáeinar mínútur ráðgerðum \ ið að hittast í fyrsta sinn í veit- ingastofunni „Dúfan“. „Ég skil. Og nú á ég að fara og afsaka, að þú getur ekki kom- ið eins og ákveðið var“. „Nei, Róbert. Þú átt að fara í staðinn fyrir mig“. „A ég að fara í staðinn fyrir þig? Nú skil ég ekki. Hvernig er fyrst hægt að' afla sér nýrrar kunningjakonu og senda svo annan í sinn stað? Er eitthvað að óttast?“ „Ertu svona skilningssljór? Þessi ókunna stúlka hefur enga þýðingu fyrir mig lengur. Ég hef nefnilega kynnzt annarri núna á leiðinni í veitingahúsið — alveg óumræðilegri stúlku. Hún sat í strætisvagninum, beint fyrir framan mig. Hún var með löng, svört bráhár, lítið andlit, kyssi- legan munn og líkamsvöxturinn var alveg óaðfinnanlegur. Skil- urðu nú, að ég hef engan áhuga á hinni, sem ég hef aldrei séð? . . . Ég ávarpaði fögru stúlkuna í strætisvagninum. Hún missti hanzkann sinn af tilviljun, og ég var eklvi seinn á mér að rétta henni hann. . . . Við ætlum að hittast eftir hálftíma fyrir fram- an Grand Bíó. Hún þarf fyrst að gera eitthvað. Á meðan ætla HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.