Heimilisritið - 01.06.1951, Blaðsíða 34
GULL EÐA AST
— Smásaga cftir Sidney Denham —
LESLTE FINN hafði vænst
þess, að Austurlönd hefð'u upp
á talsvert meira að bjóða, held-
ur en raun bar vitni um. Hann
hafði nú bráðum ráfað um penti-
legustu stræti Alexandríu um
nokkurra klukkustunda skeið,
og enda þótt þar væri vissulega
margt og rnikið sjaldgæft og at-
hyglisvert að sjá og heyra, þá
hafði samt sem áður ekkert af
þessu megnað að fá hann til þess
að gleyma því, sem liann helzt
átti að gleyma, nefnilega
Daphne Sheriff! Hann hafði
hugsað um hana 59 sekúndur af
mínútu hverri, síðan hið mikla
skemmtiferðaskip lagði af stað
út úr Tilbury-skipakvínni. Og
hér í Alexandríu var raunin ná-
kvæmlega hin sama.
Hálfkæft vein vakti hann
skyndilega upp frá draumum
hans, og hann horfði í kringum
sig eins og maður, sem vaknar
með andfælum. Hann var stadd-
ur í þröngu, mannlausu stræti,
og það vgr þegar orðið skugg-
sýnt. Veinið kvað aftur við —
lægra en áður — þarna hlaut að
vera um mann í ýtrustu neyð
að ræða. Leslie hljóp yfir göt-
una — það var úr litlu búðinni
hinum megin, að veinin bárust.
Þegar hann arkaði inn í
dimma kompuna, greindi hann
í fyrstunni ekki annað en ó-
reglulega lagaða lirúgu, sem
bvltist með miklum fyrirgangi
fram og aftur; en smátt og smátt
varð honum það ljóst, að þetta
voru tveir karlmenn, sem voru
í áflogum, og að annar þeirra
hafði greinilega yfirhöndina.
Ef Leslie hefði þekkt hið allra
minnsta til Austurlanda, þá
myndi hann hafa dregið sig í
hlé á þessu stigi málsins og lát-
ið herrana sjálfa um að gera upp
sínar sakir. Að blanda sér í ill-
deilur — og alveg sérstaklega
þegar um illdeilur í þessu hverfi
var að ræða — gat í 99 tilfell-
um af 100 aðeins haft óþægindi
í för með sér og mjög sennilega
beinan lífsháska. En Leslie hafðí
32
fíBIMILISRITIÐ