Heimilisritið - 01.06.1951, Blaðsíða 36
úr höndum mannsins, sem varð
gjörsamlega höggdofa yfir þess-
ari óvæntu árás, og laust honum
af miklu afli á herðar hans. Eig-
inlega hafði hann ætlað sér að
láta hann hafna á höfðinu á hon-
um, en honum kom það á síð-
asta augnabliki til hugar, að
það myndi að öllum líkindum
jafngildi morði, og breytti því
um stefnu í tíma. Arabinn hent-
ist upp í loftið, æpandi af kvöl-
um og hræð'slu, sleppti fóraar-
dýri sínu og þaut út í slíkum
ofboðsflýti, að hann hrinti Les-
lie um koll í leiðinni.
Dálítið ruglaður reis -Leslie á
fætur og burstaði mesta rykið
af sér. Gamli maðurinn hafði
einnig skriðið á fætur. Ennþá
greip hann andann á lofti, en
málbeinið var þegar að fullu
komið' í samt lag aftur. Hann
umfaðmaði Leslie og sagði feikn-
arlega margt og mikið á ör-
skammri stundu.
Leslie skildi ekki eitt einasta
orð af því, sem hann babblaði,
en það hlaut að vera einhver
þakklætisromsa. Þess vegna
kinkaði hann kolli, brosti og
yppti öxlum, eins og það væri
daglegt brauð fyrir hann að
bjarga fólki úr lífsháska, sem
það á hinn bóginn engan veginn
var.
„English“, sagði hann að lok-
um, þegar orðaflóð gamla
mannsins virtist vera óstöðv-
andi.
Gamli maðurinn hugsaði sig
um með erfiðismunum. Því
næst mælti hann á hræðilegri
ensku og af tryllingslegum á-
kafa:
„Englendingar gott fólk! Eg
þakka þúsund sinnum“.
„Oh-o, ekkert að þakka“,
svaraði Leslie hæversklega.
„Mér þykir vænt um að hafa
getað hjálpað yður“.
Hann litað'ist fondtnislega um
í lierberginu. Nú, þegar þetta
var afstaðið, var hann öldungis
yfir sig hissa á sjálfum sér. Að
blanda sér í áflog var eðlisfari
lians svo víðs framandi. Hann
var þekktur að því að vera afar
hæverskur og hlédrægur ungur
maður, er vogaði sér aldrei fram
í fylkingarbrjóst. En þessi átök
og hinn skyndilegi sigur hans,
hafði vakið eitthvað í brjósti
hans. Hann tók að öðlast sjálfs-
traust.
Gamli maðúrinn tjáði honum
á sinni hræðilegu ensku, að mað-
urinn, sem hafði ráðizt á hann,
væri þjófur, ræningi og bófi, og
að ef Leslie hefði ekki skorizt í
leikinn, þá hefði liann rænt öll-
um peningunum hans. Hvort
hinn tigni herra vildi gera sér
gott af einum kaffibolla í hans
fátæklega húsi?
Leslie kinkaði kolli. Honurn
34
HEIMILISRITIÐ