Heimilisritið - 01.06.1951, Blaðsíða 43
r
Hvað dreymdi þig
í nótt?
Ytarlegar d?~autna?'áðningar
DYFING. — Ef þig dreymir að þú farir með höfuðið undir vatnsyfirborð,
er það þér venjulega fyrirboði um hjúskaparstofnun innan árs. Sé
dreymandinn þegar giftur er draumurinn fyrir slæmu, oft veikindum.
DYR. — Að berja að dyrum og ganga rakleiðis inn er góður draumur.
Að halda sig vera lokaðan úti: hartfólgið áhugamál misheppnast.
Sjá brenndar eða brotnar dyr: veikindi eða dauði í húsi því. Hurðar-
lausar dyr: erfið og óviss framtíð. Ógiftum-getur það boðað gift-
ingu, að dreyma sig vera að mála hurð. Berja á læstar dyr: kröggur.
Koma að opnum dyrum: gifturík framtíð.
DYR. — Flest dýr, einkum hundar, merkja vini í draumi. Sjá dýr hlaupa:
óvæntar fréttir. Heyra dýr tala: sorg. Hvað einstakt dýr varðar vís-
ast til tegundaheita þeirra. Ef þig dreymir, að þú sjáir mörg dýr af
ýmsum tegundum, muntu þurfa að vinna mikið og strita um dag-
ana, en þér mun um sfðir hlotnast friður og öryggi.
DYRLINGUR. — Að dreyma dýrling er fyrir áhyggjulausu og farsælu
lífi. Þó getur það boðað hættu, ef mann dreymir að hann biðjist fyrir
framan við Maríulíkneskju.
DÆLA. — Dreymi þig að þú sért að dæla hreinu vatni, er það góður
fyrirboði, einkum í sambandi við spákaupmcnnsku. Sé vatnið óhreint
hefur draumurinn gagnstæða merkjngu.
DÖGUN. — Ef þig dreymir að dagur sé að renna upp, mun tímabil erf-
iðleika og mótblásturs vera fram undan bér um tíma, en allt mun
vel fara að lokum.
EDIK. — Að drekka edik í draumi boðar lítilsháttar veikindi, eða ávít-
ur og særandi athugasemdir. Þyki þér það góður drykkur, er það
þér til hagsældar.
EÐLA. — Dreymi þig að þú sjáir þetta kvikindi, muntu komast í mjög
slæma klípu og þurfa á skjótri hugsun og kímnigáfu að halda tál
þess að bjarga þér úr vandanum.
V.----------------------------------------------------------------J
HEIMILJSRITIÐ
41