Heimilisritið - 01.06.1951, Page 46
ENGISPRETTA. — Húsbændum í sveit er draumur um engisprettu fyrir
vondu. Heyfengur verður rýr og markaður óhagstæður. Oðrum er
slíkur draumur einnig fremur slæmur fyrirboði.
EPLAMJÖÐUR. — Dreymi mann að hann sé að drekka eplamjöð, merk-
ir það, að ástamál hans muni verða umræðuefni kunningja hans.
Dreymandinn er ekki nógu gætinn, og ætti að vera varkárari, því
ella mun það koma honum í kol! síðar meir.
EPLI eru gæfumerki í draumi. Þau hoða karlmanni velgengni og konu
sveinbarn, og báðum hamingju. Ef þau eru tínd í draumj geta þau
þó boðað óhöpp, einkum séu þau skemmd, en stundum er það fyrir
því að þér fæðist sonur, sem mun verða ríkur.
ERFÐASKRA. — Dreymi mann að hann sé að gera erfðaskrá, boðar það
honum langa og gifturíka ævi.
ERMI. — Ef þig dreymir að þú festir ermi þína á nagla eða öðru odd-
mjóu, muntu bráðum lenda í spennandi ævintýri með einhverjum,
sem að líkindum verður dekkri á brún og brá en þú.
ETA. — Sjá BorSd..
EYÐIMÖRK. — Dreymi mann að hann sé á eyðimörku, hvort sem hann
er einn eða í fylgd með einhverjum, er það fyrir miklum erfiðleik-
um, jafnvel hættum, sem verða á vegi þínum, ef þú gætir þín ekki
því betur.
EYJA. — Ef þér finnst þú dvelja. á eyðilegri eyju muntu missa vináttu
einhvers, sem er þér mjög kærkominn. Það mun að miklu leyti verða
þér að kenna. Sumir ráða slíkan draum fyrir barnlausu hjónabandi.
Sé eyjan græn og fögur, boðar draumurinn vaknandi ást og upphaf
að hamingju.
EYRA. — Dreymi þig að þú hafir falleg og vcl löguð cyru, og að ein-
hver hafi orð á því, er það fyrir góðu. Ef þig dreymir hið gagnstæða
er það ills viti. Að dreyma sig með særð eyru segja sumir að tákni
ótryggð, en að vera með eyru af asna eða öðrum dýrum: lítillækkun
og erfiðleikar.
EYRNALOKKAR. — Dreymi þig að þú berir glitrandi cyrnalokka, muntu
fá sérstakt tækifæri þér til framdráttar, ef þú ert maður til þess að
grípa það. Annars tákna eyrnalokkar hverfular vonir. Dreymandinn
má gæta þess að skeyta ekki of mikið um skart og ytri aðstæður ef
hann ætlar að gæta fengins fjár.
FAÐIR. — Það er hamingjumerki að dreyma föður sinn, sé hann á lífi,
en ef hann er látinn er draumurmn oft fyrirboði um hættu. Verst
er þó að dreyma, að maður misþyrmi föður sínum eða móður. Tali
Iátinn faðir þinn til þín í draumi, skaltu fara eftir orðum hans.
(Frh. t nœsta hefti).
------------------------------------------------------------------)
HEIMILISRITIÐ