Heimilisritið - 01.06.1951, Síða 48

Heimilisritið - 01.06.1951, Síða 48
Afmœlisdagurinn þeirra Smásaga eftir Jea?iette Eyerly í FJÖLSKYLDU okkar hafa allir hátíðis- og tyllidagar verið' í miklu uppáhaldi, jól, páskar o. s. frv. En allra hátíðlegasti dag- urinn er 16. ágúst, sem er af- mælisdagur pabba og mömmu. Eg veit ekki hversu óvenjulegt það er, að afmælisdagar hjóna falli þannig saman, en það er að minnsta kosti staðreynd, að öll- um sem þekkja okkur þykir það skrítið — og mömmu sjálfri finnst það hreint og beint dá- samlegt. „Því hugsið ykkur — þið hefðuð' bara aldrei fæðst, ef svona undarlega hefði ekki viljað til með afmælisdaginn okkar“, sagði mamma oft og einatt við okkur krakkana. Og svo bætti hún við og sneri sér að pabba: „Og þú, George Martin, værir liér ekki heldur, því þá hefði ég gifzt Wesley Griffith og væri nú bankastjórafrú“. Eg hafði heyrt þessa sögu hundrað sinnum, stundum var það mamma, sem sagði okkur hana, stundum var það pabbi. En alltaf fannst okkur hún vera jafn ný af nálinni og spennandi. Mamma var nýlega orðin 18 ára, þegar hún fékk atvinnu í skrifstofu Clevertons gamla. Hún var fædd og uppalin í sveit, og hafði ekki verið í borginni nema árið, sem hún var í verzl- unarskólanum. „Eg var blátt á- fram saklaus eins og engill, þeg- ar ég hitti manninn þann arna“. sagði hún og renndi augunum til himins. Það var auðvitað pabbi, sem hún átti við. — Einn daginn liafði hann komið inn í skrif- stofuna, þar sem hún sat keng- bogin yfir ritvélinni. Hann þurfti að finna Tufts, húsbónda henn- ar. En Tufts var vant við lát- inn þá stundina, svo pabbi gerði sér lítið fyrír og fór að' spjalla við mömmu, beygði sig kunnug- lega yfir skrifborðið hennar, og meira að segja tók sér það bessa- leyfi að klapþa henni á vangann, til þess að fá hana til að líta upp. 46 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.