Heimilisritið - 01.07.1951, Side 15
þögull eða fram úr hófi kven-
samur. Ef hann hafði hegðað
sér sérstaklega illa, hringdi hann
næsta dag til fórnarlambanna,
eða sendi þeim blóm. Hann af-
sakaði sig bara með, að hann
hefði ekki ætlað sér að verða
svona fullur.
Hazel kom til skjalanna, þeg-
ar málin voru komin í þetta horf.
Hún kom eins og af himnum
send, það áleit að minnsta kosti
Barry Gray, bezti vinur Char-
lies, og Georg Haks, húsbóndi
hans. Hún var há stúlka og vel
vaxin, með hversdagslegt and-
lit, rauðbrúnt hár og hornspang-
argleraugu, sem hún tók ofan,
þegar hún var ekki að' vinna.
Charlie kynntist henni, þegar
hann var að vinna við kvik-
myndahandrit, sem krafðist
ýmsra upplýsinga um járnbraut-
ir. Hún kom frá Grand Nation-
als upplýsingadeildinni, en þang-
að hafði hann leitað, og hún var
upp frá þeirri stundu ómissandi
fvrir hann. Hann tók fvrst eftir,
hvernig peysan féll að líkama
hennar, og hann komst mjög við,
þegar hún tók ofan gleraugun,
og hann sá aðdáunina slcína úr
augum hennar. Það vakti hjá
honum falskar vonir og hann
bauð henni út.
Fyrsta kvöldið fékk Charlie
nokkur glös um of, en Hazel
virtist ekki taka það nærri sér,
og hún var fús til að hlusta.
Hún hafð'i viðfelldna íbúð öðrum
megin við rafmagnsbrautina í
Beverly-hæðum, þar sem hún
bjó með móður sinni. Og þar
úti fyrir reyndi Charlie af óþol-
inmæði að kyssa hana, en varð
ekki kápan úr því klæðinu.
„Ég kann vel við, að súlkur
„Ég hef háskóla-
menntun," sagSi
Hazel ofur rólega.
13
HEIMILISRITIÐ