Heimilisritið - 01.07.1951, Blaðsíða 32
3/4 lítra vams. Að því loknu er um það
bil eitt glas a£ lauksúpu eftir — hitt
hefur soðið burt. Drekktu þetta dag-
lega á fastandi maga. Það munu ekki
líða nema 2—3 dagar, þangað til þú
finnur stóran mun á þér, auk þess sem
húðin verður fegurri. Þú þarft ekki
að óttast að þú angir af lauk, fyrst
laukurinn hefur verið soðinn.
MJAÐMASTÓR UM OF.
Sp.: Eva mín. Ég er alltof mjaðmastór
— bæði lítil og mjaðmastór. Kannske
er ég dálítið feitlagin, en samt finnst
mér fitan safnast óhæfilega á mjaðm-
irnar. Þýðir nokkuð að biðja þig um
ráð í þessum efnum? — Malla.
Sv.: Hér eru 2 æfingar, sem ég skal
gefa þér. Ég þori að ábyrgjast árangur,
ef þú iðkar þær daglega og af alúð.
1. Leggðu þig á gólfið og rétm hand-
leggina beint út frá öxlunum. Þú hefur
fótleggina beina og fast saman. Án þess
nú að beygja hnén, sveigir þú fótlegg-
ina upp og yfir brjóstið. I fyrsm geturðu
lyft þeim aðeins lítið eitt upp í loftið,
en smátt og smátt liðkastu og þá kemur
að því, sem mest er undir komið: þú
reynir að ná með hnjánum fyrst öðmm
handleggnum og svo hinum. Þetta er
svipað því, sem nefnt hefur verið „að
velta sér,“ en ber miklu meiri árangur
en fyrri aðferðir.
2.Stattu upprétt með handleggina nið-
ur með hliðunum. Lyfm nú handleggj-
unum út og upp yfir höfuðið, jafnframt
því sem þú dregur djúpt að þér andann.
Látm fingurgómana mætast yfir höfði
þér og teygðu þá eins hátt upp og þú
gemr — hugsaðu þér, að þú sért að
reyna að ná upp í stofuloftið. Látm svo
handleggina lækka hægt, og ljúkm ekki
við að anda frá þér, fyrr en þeir em
komnir alveg niður, en þá átm líka að
finna, hvernig lungun tæmast fullkom-
Iega.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „ij ára": — Fyrir nokkm kom
greinarkorn hér í ritinu, sem nefndist
„Horfðu í augun á fólki“. Feimið fólk
eins og þú gæti lært sitthvað af því, sem
þar segir. Hafðu það hugfast, þegar þú
ert feimin við einhvern, að hann hefur,
eins og þú og aðrir, sínar veiku hliðar.
Ef þú kappkostar að skara fram úr á
einhverju sviði, eflist sjálfstraust þitt
einnig ósjálfrátt, auk þess sem feimni
eldist oft af fólki.
Til „xg'. — Ég get því miður ekki
hjálpað þér viðvíkjandi þessu ískyggi-
lega hárlosi. Leitaðu til fleiri lækna. Það
er óhugsandi annað, en að einhver
þeirra geti orðið þér að liði. Spurðu þá,
hvort þetta geti ekki stafað út frá
skjaldkirtlinum. — Hárkollur veit ég
ekki hvort fást hérna, en það væri reyn-
andi að spyrjast fyrir um það hjá hár-
greiðslustofum. — Varðandi „huldu-
lækninn“, skalm snúa þér til Sálarrann-
sóknarfélags Islands.
\
Til „Evudóttur". — Við erum sam-
mála, hvað snertir illgjömu mennina;
þeir mætm missa sig. Að því er kvið-
vöðvana snertir, geturðu vanið þá þann-
ig, að maginn verði inndreginn, án
nokkurra líkamsæfinga. Það kostar of-
urlitla viljaeinbeitingu fyrst í stað. Þetta
gera allar heimsdömur nú á dögum. Fót-
leggina gætjrðu e. t. v. lagað með því
að iðka hjólreiðar, og nudd væri að sjálf-
sögðu gott fyrir þig. En tölumst bemr
við, þegar þú kemur úr utanförinni.
Góða ferð og skemmm þér vel.
Til „Rauðku": — Þetta muntu geta
fengið lagfært með nýtízku aðferðum.
Snúðu þér til einhverra snyrtjstofanna
og fáðu upplýsingar.
Eva Adams
30
HEIMILISRITIÐ