Heimilisritið - 01.06.1952, Page 16

Heimilisritið - 01.06.1952, Page 16
kunni ekki þennan dans,“ sagði Lintí afundin. „Ekki það? En þá getum við setið og spjallað saman á meðan. Komið!“ Hann tók handegginn á henni og smeygði honum undir arm sinn og hélt fast. Lintí vissi, að ekki þýddi fyrir sig að reyna að draga hann að sér, því þá myndi hann bara halda þeim mun fast- ar. Hann leiddi hana út í garðinn og lét hana setjast í körfustól, en sjálfur settist hann á lága steinbrík beint á móti henni. Lintí fann, að hann horfði á hana. „Vitið þér, að þér eruð öðru- vísi en allar aðrar?“ sagði hann allt í einu. Einmitt það, sem Níta hafði sagt, að hann segði við allar stúlkur. „Já, það veit ég vel,“ sagði hún rólega. „Ég er nefnilega úr sveit, skal ég segja yður.“ „Já, en það erum við líka.“ „Að vísu, en ég er frá bænda- byggðinni, þar sem vatnið er dregið í fötu upp úr brunni og keyptur er forði til vetrarins í einu lagi, því það er adrei að vita nema snjóar taki fyrir alla aðdrætti.“ „Það var merkilegt/1 sagði hann. „Svona nokkuð hélt ég, að ekki væri til á okkar tímum. Segið mér meira.“ Nú spilaði hann út næsta trompinu, hugsaði hún — hann lézt hafa áhuga á því, sem hún sagði. „Ég held ég vilji heldur fara inn,“ sagði hún kæruleysislega. „Hér er fremur kalt.“ Hann hikaði ekki andartak, en fór úr kjóljakkanum og lagði hann um herðar henni. „Mér finnst það fremur bros- legt,“ sagði Lintí. „Gerið svo vel að taka jakkann yðar áftur, Beaumont.“ Hann roðnaði ofurlítið og tók jakkann strax. „Þér eruð bersýnilega ákveð- in í að láta mig fá orð í eyra,“ sagði hann. „Af hverju veit ég ekki, en þér munuð brátt kom. ast að því, að það er ekki svo auðvelt að hrista mig af sér. Nú vitið þér það.“ Hann snerist á hæli og fór. „Ó —!“ stundi Lintí móðguð. „Hann er viðbjóðslegur! Hann ímyndar sér, að hann sé öldung- is ómótstæðilegur. En ég skal sýna honum, að í þetta sinn bregzt honum bogalistin.“ ÞAÐ var lítill vandi að sýna honum, að maður óskaði ekki fé- lagsskapar hans, en hvað átti að gera, þegar ekkert hrein á hon- 14 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.