Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 21

Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 21
orði. En hann laut niður og kyssti hana. Og á þessu dásamlega andar- taki heyrðist rekinn upp hæðn- ishlátur. Nokkur skref frá þeim stóð Föba Kantrell og brosti háðslega. „Óska til hamingju, Jeremy,“ sagði hún. „Ég hélt ekki þér myndi takast það, en ég verð að viðurkenna, að ég hef tapað veð- málinu.“ Hún sneri sér við til að fara, en Lintí stökk af stað! „Bíddu!“ sagði hún með und- arlegri röddu, sem hún þekkti varla sjálf. „Hefur Jeremy veðj- að við þig um, að hann fengi að kyssa mig?“ „Já, spurðu hann sjálfan,“ sagði Föba og hló spottandi. Jeremy greip í handlegginn á Lintí. „Lintí — fyrir alla muni — þú mátt ekki —“ Hún reyndi ekki að rífa sig lausa, en stóð eins og stirðnuð. „Er þetta satt, Jeremy?“ spurði hún lágt. „Já — en — ,“ byrjaði hann. Hún beið þess ekki að heyra meira. Hún þreif jakkann sinn og hljóp eftir döggvotu grasinu inn í húsið, upp í herbergi sitt og læsti á eftir sér. Snemma næsta morgun fór lest. Með henni fór Lintí. ÞAU spurði hana einskis heima, og allt virtist eins og, áð- ur en hún fór. En nú gekk hún um með þá tilfinningu, að þungt farg hvíldi á hjarta hennar. Hún lét ekki á neinu bera við for- eldra sína. Húií hlustaði þolin- móð á rabb móður sinnar og dáðist að blómum föður síns. En hún sá ekki fegurð þeirra. Lífið var ekki lengur fagurt — og það var Jeremy Beaumont að kenna. Og það versta var, að þó hún fyrirliti hann, gat hún ekki bannað hjarta sínu að elska hann. Þess vegna var líka eins og hjarta hennar stanzaði snögg- lega, þegar langur, ljósbleikur bíll, sem hún þekkti, ók heim að húsinu kvöld eitt. Og í stað þess að segja honum, hversu inni- lega hún fyrirliti hann, stóð hún og starði á hann án þess að koma upp nokkru orði eða hreyfa sig. Jeremy sneri sér beint að efn. inu. Hann tók um hendur henn- ar og sagði: „Lintí, ég veðjaði við Föbu um, að ég fengi að kyssa þig, en það var áður en ég hafði séð þig. Ég vil heldur ekki halda fram, að ég hafi meint nokkuð alvar- legt í fyrstu, og þó — ég er ekki alveg viss um það. Og áður en ég sagði þér, að ég gæfist upp, JÚNÍ, 1952 19

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.