Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 37
Steve!“ sagði María án þess að
líta upp.
Steve dró djúpt andann, og
hann varð að stilla sig til að
koma ekki með hvassyrt svar.
Til allrar heppni minntist
hann þess samt, að hann var full-
kominn eiginmaður og lét sér
nægja að segja:
„Hefðirðu gefið þér tíma, ef
þú hefðir séð mig taka ösku-
bakkann?“
Þessu svaraði lnin engu, og í
örvæntingu út af því, bætti hann
við':
„Sannleikurinn er sá, að þú
tekur næstum aldrei eftir því,
sem ég geri“.
Hún rétti úr sér og leit hugs-
andi á hann. Og það er eitthvað
í bláum augum, sem veldur því,
að þau virðast bera vott um
meiri hugsun en önnur augu.
Hún skrúfaði hettuna á lind-
arpennann sinn, skaut fram hök-
unni og bjó sig undir sennuna.
„Nú, svo ég tek ekki tillit til
þín. Skyldir þú vita mikið um,
hvað ég hef að sýsla allan dag-
inn? Það er ég sem fer fyrr á
fætur. Eg, sem tilreiði morgun-
verðinn þinn. Ég held húsinu
hreinu. Ég fer sendiferðir fyrir
þig. Ég . ..“
„Bíddu svolítið!“ sagði hann.
„Ef til vill mætti ég minna þig
á, að það er jafnframt þinn clgin
morgunverður, og það er líka
þitt hús. Og það eru víst ekki
síður þínar eigin sendiferðir —.
Og svo er þetta blátt áfram þitt
starf og kemur ekkert við til-
litssemi“.
„Starf! Þetta er ekki einungis
starf!“ sagði hún móðguð.
„Þetta er í hæsta máta listræn
starfsemi!“
„Þá segjum við það“, sagði
hann, alls ekki á því að gefa eft-
ir. „En gætir þú ekki gefið þér
tíma til að hugsa ofurlítið minna
um hreingerningar, matreiðslu
og búðargöngur og ofurlítið
meira um — já, um ástina?“
Hann leit í tímaritið, sem enn
lá á hnjánum á honum. „Eða
öllu heldur samúðina!“ Svipur-
inn var beiskjublandinn.
„Samúð! Hvað í ósköpunum
vilt þú með' samúð?“
„Jú, samúð með mér og
vandamálum mínum. Þú hlust-
ar aldrei, þegar ég minnist á
þau“.
„Ég vissi ekki til, að þú hefðir
nein“, sagði hún undrandi. „Að
minnsta kosti ekki nein alvar-
]ea“
„Nei, því þú spyrð aldrei um
þau .
Hún andvarpaði þungan. Þvi
nú var hún alvarlega áhyggju-
full. Hvers vænti hann af henni?
Ætti hún að koma á móti hon-
JÚNÍ, 1952
35