Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 54

Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 54
rölti um stund og ákvað svo að skreppa aftur til Muttonsgisti- hússins til að sjá, hvernig líkinu hans liði. Honum þótti sárt að sjá, að aðlaðandi brosið, sem hann hafði gert sér svo mikið far um að setja upp, var dofnað. Það leit nú bara fábjánalega út. Án þess að hugsa nánar út í það, læddist hann inn í líkamann til að lag- færa brosið. Og rétt í því klæjaði hann í nefið og hnerraði. Hann vaknaði- — snarlifandi í glæsilegu hótel- herberginu. „Nú er heima,“ sagði hann og leit á náttborðið. „Getur verið, að ég hafi ekki verið búinn að gleypa nema tvær töflur áður en ég sofna'ði? Það er eitthvað til í því, að bezt sé að flýta sér hægt. Þetta hefur þá einungis verið afar eðlilegur draumur!" Hann var feginn að vera lif- andi, og enn þá fegnari varð hann, þegar það kom á daginn á næstunni, að meðbiðill hans var horfinn með húð og hári. Síðast höfðu nokkrir vinir hans séð hann ganga niður í neðan- jarðarstöðina á Piccadilly Circ- us nokkru eftir miðnætti á föstudagskvöld. Louis kom fyrst í hug að heimsækja Seliu, en svo sá hann sig um hönd og fór í þess stað til París, og á þessu má sjá, að kvenfólk ætti að hugsa sig vel um áður en það tekur til að leika sér að tilfinningum lítilla. bláeygra karlmanna, því þá get- ur svo farið, að þær sitji allt' í einu með sárt ennið. VELSVARAÐ Glettinn læknir (við listmálarann): „Þetta em víst hin nnsheppnuðu vcrk yðar, sem þér látið hanga hérna.“ Listamaðurinn (ólundarlega): „Já, í þeim efnum hafið þið læknarnir betri aðstöðu en við. Þið grafið ykkar.“ Á ÁKÆRANDABEKKNUM Eitt sinn þegar enski dómarinn Sir Hcnry Hawkins, scm hafði mik- inn áhuga á allskonar sporti, var seztur í dómarasætið og ákærði hafði verið kallaður fyrir, var því veitt athygli, að fanginn sagði eitthvað við vörðinn. Ákærandinn krafðist þess, að vörðurinn skýrði þegar í stað frá því, hvað fanginn hefði sagt. Vörðurinn færðist fyrst undan, cn þegar dómarinn skipaði honum að hafa upp orðin, kvað hann fangann hafa bent á dómarann og spurt: „Hver er þessi mölétni, gamli heiðingi þarna? Ég hef oft séð hann hengslast upp við veðreiðabrautir." 52 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.