Heimilisritið - 01.06.1952, Side 59

Heimilisritið - 01.06.1952, Side 59
hughægra við nærveru Cicily. „Það er ungfrú Cieily Young, frænka mín. Cicily, þetta er Patterson ]æknir“. Þau kinkuðu kolli. „Ungfrú Young, viljið þér ná fyrir mig í glas af vatni?“ spurði læknirinn. Það var vatnskanna ásamt glasi rétt hjá þeim. Cicily leit tortryggin á hann og skenkti í hálft glas. „Svo Crosby er farinn. Það var slæmt. Eg þekkti hann vel i fjörutíu ár. Jæja, hvað kom annað' fyrir?“ „Margt. Það kom hönd í gegnum rúmtjöldin hjá mér og stal hálsmeninu mínu“. Læknirinn hélt skammti af einhverju dufti í hönd sér vfir vansglasinu og hellti dálitlu af því í glasið. „Já, humm, skrít- ið“, sagði hann. „Já, svo reyndum \úð að ná í lögregluna, en þá var símaþráð- urinn slitinn“. „Grunsamlegt“, sagði læknir- inn og hellti enn meira af dufti í glasið. „Svo hvarf Paul — Paul frændi minn hvarf í gegn um vegginn í svefnherberginu mínu og vegg- urinn lokaðist á eftir honum“. „Skrítið“, sagði læknirinn og hellti enn meira dufti í glasið. „Svo kom ég hingað inn til að JÚNÍ, 1952 segja Susan þetta, en Susan er önnur frænka mín, og þá tók hún til fótanna og hvarf, eitt- hvað út“. „Hu — humm, einkennilegt. Mjög einkennilegt“. Og hann hellti ennþá meira dufti í glas- ið. Allt í einu hallaði Patterson læknir sér áfram og bretti upp augnalok Annabelle. Hann leit í augu hennar, lengi og grand- gæfilega. Þegar liann sleppti þeim, sagði hann aftur: „Hum — humm“, og tók upp glasið. „Hérna, drekkið þetta. Það róar yður. Líkamlega virðist þér heilbrigðar, en þér eruð í hræði- lega æstu skapi“. „Drekktu það ekki, Anna- belle. Þetta gæti verið' eitur“, hrópaði Cicily Young, æst í skapi. „Ungfrú Young, þér eruð ekki með fullu viti. Ég kom ekki hing- að um þetta leyti nætur til að taka á móti ásökunum. Ég mun kæra þetta í fyrramálið“. Og án þess svo mikið sem að líta á þær, greip Patterson læknir hatt sinn og gekk út úr herberginu. Stúlkurnar fylgdu honum báð- ar eftir með augunum, sýnilega léttari í skapi, þar sem hann gekk í gegn um anddvrið. Með- an þær einblíndu á lækninn, kom í ljós loðin bönd í dyra- 57

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.