Heimilisritið - 01.06.1952, Page 62

Heimilisritið - 01.06.1952, Page 62
hann stæði uppréttur. Gólfið virtist slétt, og veggirnir voru bornir steinlími og vel sléttir. A þessum stað voru göngin alveg bein. I myrkrinu gat hann hvergi orðið var við, að hægt væri að geyma lík þarna, eða koma fyrir þeim vélaumbúnaði, sem hann hafð'i heyrt að lokaði dyrunum sjálfkrafa á hæla hon- um. Allt í einu, um leið og hann beygði fyrir horn á beina gang- inum, varð ekkert gólf undir fæti hans, og hann hafði nærri misst jafnvægið. Hann virtist standa við efri enda á tröppum, og það þótti honum góðs viti. Hann vissi, að hann þurfti að komast niður á hæðina fyrir neðan, til þess að geta komizt nálægt bókaherberginu. Hans hugmynd var sú, að' hvarf lög- fræðingsins í bókaherberginu og síðar hvarf líksins úr svefnher- berginu, væri verk einnar og sömu persónu, og að hvort tveggja hefði skeð í gegn um þessi leynigöng. Þetta reyndist rétt, stiginn lá niður á næstu hæð, hann taldi þrepin. Hér voru göngin breiðari og hærri. Loftið var einnig frískara hér. Sama myrkrið var hér, og hann varð stöðug’t að þreifa fvr- ir sér. Sem betur fór lágu engin hliðargöng út frá þessum gangi. Allt í einu heyrð'i Paul raddir, hann hlustaði með athygli og skreið í áttina þangað, sem hljóðið kom frá. Tíu skref enn, og undarlegt atvik skeði. Orðin virtust sögð fast við eyra lians, og hann þekkti röddina. „Hvernig — hvernig gátuð þér vitað hver ég var?“ heyrði hann að Annabelle sagði eins greinilega og hún hefði ekki staðið lengra en fet frá honum. Þetta líktist kraftaverki. Ilér var hann í steingöngum, og þó virtist eins og Annabelle væri þar hjá honum. Hann hlustaði eftir svarinu. Röddina, sem svar- aði, þekkti hann ekki, hafði aldrei héyrt hana áður. Rödd Annabelle var æst, en hin rödd- in virtist traust og róleg. Ef til vill var magnara komið fyrir milli bókastofunnar og leyni- gangsins. Sniðugt, farnist hon- um. Að minnsta kosti var hann viss um að' þetta væri bókaher- bergið. Jæja, hann þóttist viss um, að gengt myndi vera niður í kjallarann einhvers staðar, og þá ætti að verða fvrir honum enn einn stigi. Hann þreifaði fyrir sér með fótunum og kom nú að öðrn horni. Sér til mikill- ar gleði sá hann, að ljós skein út úr göngum fyrir neðan. Yið Ijós- bjarmann sá hann steintröppur, sem lágu niður í kjallarann. Þegar Paul ætlaði að halda 60 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.