Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 67
SPURNINGAR OG SVOR
(Framh. af 2. kápnsiðu)
þú ferð að sofa. Neyttu sem minnst af
salti. Fáðu þér aldrei aukabita. Farðu í
gönguferðir, dansaðu, iðkaðu badming-
ton eða annað slíkt sport. — Ef þú get-
ur komið því við, skaltu eiga vog og
vega þig daglega.
Eva Adams.
FARIN AÐ ÖRVÆNTA
Til „Einnar, sem örvæntir': — Það er
mesti óþarfi að örvænta, þótt þú sért
komin þetta yfir þrítugt. Ást og róm-
antík getur komið til þín á hvaða aldri
sem er.
Flugsaðu ekki sem svo: Ég er orðin
of gömul og ráðsett. — Það er ekki
rétt. Unga fólkið hefur alls ekki einka-
rétt á ástinni.
Fylgstu með tímanum í hárgreiðslu,
klæðaburði og skoðunum. Með þessu er
ekki sagt, að þú eigir að vera uppgerðar-
leg og sminkuð tízkudrós. Föt þín geta
verið klassisk og svipur þinn ungur. Þú
getur verið létt í skapi, rætt af þekkingu
um umræðuefni líðandi stundar og flétt-
að inn í samræðurnar minningum og
reynslu þinni.
Karlmenn þarfnast engu síður ástar
en konur. Það skaltu hafa hugfast. Þrá-
in eftir hamingju, fegurð, skilningi,
sameiginlegum hláturstundum, ánægj-
unni af því að líta til baka yfir liðin ár
með samlyndum félaga, er alveg sama
hjá báðum kynjum og á öllum aldri.
Eva Adams.
VARÐANDI HÚÐINA
Svar til „A. B.": — Þvoðu alltaf af
þér púður og krem á hverju kvöldi.
Þar sem þú hefur feita húð, skaltu
þurrka andlitshúðina með baðmullar-
hnoðra, bleyttum í spritti. Notaðu á-
vallt gott dagkrem undir púðri. Ef þú
þværð þér upp úr heitu vatni, skaltu
skola húðina vel upp úr köldu vatni á
eftir. Enginn, sem hefur slæma húð,
ætti að neyta sterkra drykkja, mjög
kaldra rétta eða súkkulaðis.
Varirnar verða rauðar og hraustlegar,
ef þú burstar þær varlega með tann-
burstanum, þegar þú hefur burstað
tennurnar.
Eva Adams.
HÚN VILL HANN EKKI
Svar til „B. B": — Mér finnst þú
ættir að láta stúlkuna í friði. Hún hef-
ur svo áþreifanlega gefið þér f skyn, að
hún kæri sig ekki um aðdáun þína.
Hver veit nema hún sakni þín, þegar
þú lætur hana afskiptalausa. Þannig eru
sumar stúlkur. En vísast er fyrir þig að
reikna ekki með því, að sú veika von
rætist. Réttast væri að álíta öllu lokið
ykkar á milli, þótt það sé sársaukafullt.
Þú hlýtur að hafa það stolt, að eyða ekki
ást þinnj á stúlku, sem vill ekkert hafa
saman við þig að sælda.
Eva Adams.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „Hlaupársbarns": — Venjan er
sú, að þeir, sem fæddir eru á hlaupárs-
degi, halda afmælisdaginn hátíðlegan 28.
febrúar, þau ár, sem ekki hafa 29 daga
í þeim mánuði.
Til „Húsmóður": — Joðáburður er
5% upplausn af joði í vínanda, og ef
joðáburðurinn er geymdur til lengdar,
einkum á björtum stað, getur hann orð-
ið skaðlegur fyrir húðina.
Til „S. S.": — Því miður er víst ekk-
ert við þessu að gera. Það er þó varla
öll von úti ennþá, um að þetta breytist
með aldrinum. Og sumir menn, sem
eru fæddir með þessu óeðli, hafa eign-
azt böm og gott heimili. Svo við skul-
um vona það bezta, vinur.
Eva Adams.