Heimilisritið - 30.05.1953, Síða 20

Heimilisritið - 30.05.1953, Síða 20
NOK.K.RIR sjóliðar stóðu og horfðu á eftir kafbátnum. Ungur liðsforingi, sem annaðist varð- gæzlu, gekk fram og aftur. Hvítt leitarljós féll á kafbátinn. Hún sá ,,V—70” með stórum, hvítum stöfum. Hún stóð og horfði. V—70 er farinn! Hún hafði komið of seint. Þessi sama setning fór gegnum huga hennar, hvað eftir annað. Tony var farinn — farinn burt úr hennar lífi. Hún sneri burt, en einhver snart armlegg hennar. Það var ungi liðsforinginn. ,,Þér eruð víst ekki frú Cart- er ?“ spurði hann. „Jú,“ svaraði hún. Liðsforinginn kinkaði kolli. „Carter höfuðsmaður sagðist búast við, að þér kæmuð hing- að.“ Hann tók eitthvað upp úr vasa sínum. „En ef þér hefðuð ekki komið, átti ég að senda þetta til yðar.“ „Hver — hver, sögðuð þér ?“ „Foringinn á V—70 — Carter höfuðsmaður." Hann hafði þá verið hækkað- ur í tign. Það var ekki furða, þótt faðir hennar þættist geta útvegað honum hækkun. Tony hafði þeg- ar unnið til þess — með sínu eig- in erfiði. Það höfðu verið liðs- foringjajmerki á einkennisbún- ingnum hans í dag, af því hann hafði ekki haft tíma til að skipta um. En þetta var það, sem hann hafði langað til að segja henni — þess vegna hafði hann orðið svo reiður! Liðsforinginn rétti henni silkivasaklút. Hún tók hann sundur, fálm- andi höndum, fór með hann und- ir næsta ljósker, en gat þó varla lesið. ,,Eg 0ar8 að flytja hafurtask, mitt um bor<5 í V—70 síðdegis í dag, annars hefði ég komið heim og lokað munninum á þér — rrreð kossi. Bíddu mín, Rau<5k°da! kem eftir þrjár vikur!“ En það sjálfsöryggi! Skepna gat hann verið ! Hann hafði ekki eina sekúndu verið smeykur um, að hann myndi missa hana. Hann var alveg öruggur. Og hvað það var líkt Tony! Hún gat hatað hann fyrir það, en í stað þess hló hún bara! Og svo fór hún að gráta. Eitthvað hafði dottið úr vasaklútnum niður í lófa hennar. Það var flotahringur með bláum demanti. Hún hélt honum upp mót ljósinu og grét. „Er nokkuð að ?“ spurði liðs- foringinn. „Nei, nei, ekkert,” sagði hún. „Gerið mér aðeins þann greiða að senda merki til skipstjórans á V—70. Segið honum að skip- stjórafrúin bíði!“ * 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.