Heimilisritið - 30.05.1953, Blaðsíða 65

Heimilisritið - 30.05.1953, Blaðsíða 65
,,Þér hafið ágætt minni, frú Manton.“ Hann brosti: ,,Mér er það heiður, að þér skulið muna eftir mér.“ Það var stutt þögn, svo sagði hún fyrirmannlega: ,,Má ekki bjóða yður sæti, herra Kovan ? Þér eigið sjálfsagt sérstakt erindi við mig. Eða starf- ið þér hérna á hótelinu ?“ Hann hristi höfuðið. ,,Nú sem stendur dvel ég hjá kunningjum mínum uppi í sveit. Það var heima hjá þeim, sem ég ko-mst að dálitlu, sem ég hugsa að yður komi vel að vita.“ ..Eitthvað, sem mér kæmi vel að vita ?“ Hún leit fyrst hugsi á hann, og svo með illa duldri á- kefð. En — nei — auðvitað gat hann ekkert vitað um dvalarstað Katrínar. ,,Nú,' nú,“ sagði hún fljótmælt, ,,hvað er það ?“ En honum virtist ekkert liggja á að seðja forvitni hennar. ,,Eg hugsa að þær upplýsing- ar, sem ég hef, muni vera yður mjög mikils virði, frú Manton,“ svaraði hann. ,,Þér látið mig kannske dæma um það.“ Hann leit skælbrosandi til hennar. ,,Þarf ég að geta þess, frú Man- ton, að þessar upplýsingar hafa kostað mig talsverða tímaeyðslu, svo ekki sé talað um beinan kostnað ? Eg veit, að ég þarf ekki að kvarta yfir vanþakklæti yðar af fyrri viðkynningu. “ Hann brosti aftur, köldu, hörðu brosi. Hún lyfti litúðum augabrúnum. ,,Ef þér gefið mér einhverjar verðmætar upplýsingar, varðandi hverja eru þær?“ Hann hikaði litla stund, svo laut hann fram. ..Varðandi Katrínu dóttur yð- ar, frú. Eg hygg að hún hafi strokið í burtu á sjálfan brúð- kaupsdaginn, eða hvað ? Og hingað til hefur yður ekki tek- izt að hafa uppi á henni. Það er þess vegna, sem þér komuð hing- að til Englands. Er það ekki rétt ?“ ,,Vitið þér hvar Katrín er?“ spurði hún og greip andann á lofti. Hún laut nú líka fram í stólnum og kreppti holdgrannar hendurnar um hnén. ,,Ef svo er, verðið þér að segja mér það, Kovan. Ég lofa yður því, að ef ég finn hana með yðar aðstoð, skal ég verða —“ hún hugsaði sig um — ,,eins rausnarleg og ég hef verið áður.“ Það varð önnur stutt þögn. ,,Eg efast ekkert um það, frú,“ sagði hann í barm sér. ,,En ég hélt ég hefði gefið yður í skyn, að nú í svipinn er ég ekki vel staddur fjárhagslega. Mér kæmi SUMAR, 1953 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.