Heimilisritið - 30.05.1953, Side 38
víst var Elísabet fegurðardís !
,,Ertu enn að hugsa im að
verða hjúkrunarkona ?“ spurði
hún — full virðingar fyrir sinni
fögru frænku.
,,Nei,“ sagði Elísabet ákveð-
ið. ,,Það var bara krakkaskapur.
Nú ætla ég að verða kvikmynda-
stjarna. “
Kvikmyndastjarna ! Það hlaut
að vera dásamlegt, hugsaði Sús-
an.
,,Og hvað ætlar þú að verða ?“
spurði Elísabet kurteislega, en
ekki af miklum áhuga. ,,Ætlar
þú að verða hjúkrunarkona, eða
ætlarðu að giftast ?“
,,Hjúkrunarkona,“ muldraði
Súsan. ,,Eg giftist áreiðanlega
ekki. ‘ ‘
Elísabet leit undrandi á hana.
,,Eg ætla að giftast," sagði hún,
,,en fyrst ætla ég að verða filcn-
stjarna."
Þaer gengu um stund þegjandi,
og svo sagði Elísabet: „Hefur
þér verið boðið á skólaballið ?“
Hjarta Súsan tók að slá ört.
,,Nei — en þér?“ tókst henni
að stynja upp.
,,Nei.“ Það var ekkert í rödd
Elísabetar annað en vottur af ó-
þolinmæði. „Þetta eru svoddan
pelabörn, strákarnir — þeir þora
ekki að tala við okkur.“
,,Með hverjum viltu helzt
fara?“ spurði Súsan og iðraðist
strax spurningarinnar. Allar telp-
urnar vildu auðvitað helzt fara
með Mike. En Elísabet var bara
leyndardómsfull á svip, rétt eins
og hún þyrfti ekki að óska neins
— hún var alveg örugg.
Einmitt í sama bili birtist Mike.
Elísabet reigði sig, og. svipur
hennar varð yfirlætislegur eins og
á fyrirmyndunum í tízkublöðun-
um. Hjartað stóð kyrrt í Súsan.
Hún bað þess með sjálfri sér, að
Mike byði Elísabet ekki á dans-
leikinn — á meðan hún hlustaði
á.
En Mike tautaði bara: ,,Gott
kvöld,“ og arkaði áfram á sínum
löngu leggjum, rétt eins og hann
væri smeykur um, að telpurnar
myndu ónáða hann. Súsan var
heitt í kinnu.m. Hann var svo lag-
legur. . . .
Elísabet var kuldaleg á svipinn.
,,Hann er bara snotur,“ sagði
hún.
Súsan gat einungis kinkað
kolli, Það er Mi\e, sem hún vill
fá, ég vissi það, hugsaði hún. Og
hún afsalaði sér Mike fyrir fullt
og allt.
Þegar hún kom heim um kvöld-
ið, stóð móðir hennar í borðstof-
unni með grænt kjólaefni á hand-
leggnum. Það féll í djúpar, mjúk-
ar bylgjur.
,,Það er handa þér, fyrir skóla-
ballið, sagði hún, þegar Súsan
.36
HEIMILISRITIÐ