Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 13

Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 13
handa Kötu, en þegar hann sá Max, stirðnaði á honum drengja- brosið. ,,Kærðu þig kollóttan um hann,“ sagði Kata. ,,Hann býr hérna niðri og kecnur um leið og hann finnur kjötlykt. Þar að auki vill hann heldur þær ljóshærðu.“ Borðið var skreytt með blóm- um og kertaljósum; kristalli og silfri ægði saman, og sósan var guðdómleg. Eftir því sem á mál- tíðina leið varð Donald hrifnari og hrifnari á svipinn. Max komst að raun urn það, sér til ánægju, að maðurinn hafði ágætt vit á boltaleik og játaði með sjálfum sér, að þetta myndi vera prýðis- piltur. Það yrði ekki ógaman að heimsækja þau Kötu og hann, þegar þar að kæmi. En allt í einu leit Kata á úrið. ,,Jæja, Donald, nú verðum við að fara,“ sagði hún. ,,Max, þú þværð upp, er það ekki ? Þú ert svo mikið yndi.“ Morguninn eftir, þegar Max sat í skrifstofu sinni, átti hann erfitt með að einbeita huganum að verkinu. Hann var feginn því, þegar hann var ónáðaður með því að barið var að dyrum, og Nadína, ljóshærð, fríð og skart- leg sigldi inn. ,,Max, ég þarf á 500 dollurum að halda,“ sagði hún hásri rödd, sem hún hafði æft í sjónvarpið. ,,Mig vantar armband. 1 sjón- varpinu lítur það út fyrir að kosta eina 5000 bleðla.“ ,,Elsku Nadine,“ sagði Max alúðlega. ,,Ég er búinn að sýna þér fram á, að þ.ú hefur tæmt kassann. Þú átt ekki eyri afgangs það sem eftir er mánaðarins." Bráhárin á Nadine sveifluðust hættulega. ,,Max, ég vil eignast þetta armband !“ ,,Við skulum borða hádegis- verð saman,“ sagði hann. ,,Þá getum við rabbað um það.“ Meðan þau fengu sér í gogg- inn, gerði hann heiðarlegar til- raunir til þess að leiða hana í þann sannleika, að nauðsynlegt væri að eyða ekki yfir efni fram — þótt hann loks að kaffinu loknu klappaði henni á handar- bakið og skrifaði andvarpandi 500 dollara ávísun til hennar. Þegar þau skildu að lokum, fór hann heim, ákveðinn í því að heicnsækja Kötu ekki. En hann var varla kominn inn úr dyrun- um, þegar hún kom niður til hans. ,,Hvað hefurðu gert af búr- hnífnum mínum ?“ spurði hún á- sakandi. Hann varð að fylgjast með henni upp til þess að hjálpa henni að leita, og seint og síðar meir fundu þau hann uppi á stórum skápi. Hann gat hreint ekki skil- ÁGÚST, 1953 11

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.