Heimilisritið - 01.08.1953, Side 18
skátaflokks. Þegar hann vaeri orS-
inn faðir nokkra roskra drengja,
þá fyrst skyldi . .
Þegar IVIax var hér kominn í
framtíðardraumum sínum, opnuð-
ust skyndilega augu hans fyrir
því, hvers vegna hann hafði ver-
íð í svo slæmu skapi um morgun-
inn. Það var samvizka hans, sem
lét hann ekki í friði. Hann hafði
að fyrra bragði boÖizt til að
hjálpa Kötu við að krækja í Don-
ald Brokfield — prýÖispilt, sem
aldrei hafði gert honum neitt illt.
Honum fannst eins og hann
vær svikari við karlkynið í heild.
Hann myndi aldrei framar líta
glaðan dag, fyrr en hann hefði
bjargaÖ Donald úr þeirri hættu,
sem yfir honum vofði.
Hann flýtti sér heim og gekk
beint upp til Kötu, sem var að
búa til mat, en Donald stóð og
horfði á. Max dró hana út á mitt
gólf og kyssti hana með tilfinn-
ingu.
,,Vertu ekki að trufla mig,“
sagði hún. ,,Kjötið brennur við.“
,,£g reikna með því, að Kata
hafi sagt yður það, Donald,"
hrópaði hann. ,,Þér megið gjarn-
an óska mér til ha-mingju !“
Donald leit á þau á víxl. ,,Um
hvað eruð þér að tala, Chaffee ?
Hefur yfirleitt nokkur gert boð
eftir yður ?“
„£g vil hann ekki, þótt svo
hann væri hálfkominn í gröfina,
og líftrygging hans væri í gildi,“
sagði Kata.
,,Enginn má sköpum renna,“
sagði Max og lagÖi verndandi
hönd á öxl Donalds. ,,Kunnið
fótum yðar forráð, áður en það er
um seinan. Gætið yðar einkum á
stúlkutetrum, seim búa til góðan
mat. . . .“
,,£g er í eÖli mínu friðsamur
maður,“ sagði Donald. ,,En allt
frá því ég sá yður fyrst, hefur mig
langað til að velgja yður undir
uggum.“ Hann kreppti hnefana.
,,Donald, á ég að kynna yður
fyrir Nadine Nelson, sjónvarps-
stjörnunni, þér vitið ?“
Donald hugsaði sig um eitt
andartak, áður en hann réðist á
Max, sem hörfaði aftur á bak
gegnum dyrnar inn í stofuna.
Kata heyrði brothljóð í gleri og
postulíni og að stóll valt um koll.
Þegar hún kom inn, lágu áfloga-
seggirnir undir borÖinu.
,,Kjötið er allt kolbrunnið á
pönnunni!“ ságði hún ásakandi.
Donald stóð upp með blóÖnas-
ir. ,,Ég held annars ég afþakki
matinn í dag, “ muldraÖi hann
gegnum blóðblettaðan vasaklút-
inn. ,,ViÖ sjáumst seinna, Chaf-
fee. Þá getum við talað nánar
sam.an um þessa sjónvarps-
stjörnu.“
Max þreifaði á skaddaðri hök-
16
HEIMILISRITIÐ