Heimilisritið - 01.08.1953, Page 38

Heimilisritið - 01.08.1953, Page 38
yÖur vel!“ sagði frú Hupple. Þetta var fyrirtaks ráðlegging við þetta tækifæri, og Dollý óskaði oieð sjálfri sér, að frú Hupple gæti einnig sagt sér hvernig hún ætti að fara að því að skernmta sér. ,,Ég skrifa hérna sí.nanúmerið handa yður,“ sagði hún, og um leið heyrðist ákaft bílflaut. Ben var auðheyrilega orðinn óþolin- móður — en allt í einu datt henni snjallt ráð í hug. ,,Frú Hupple,“ sagði hún og bar ört á. ,,Viljið þér hringja til mín um miðnættið ?“ Og þegar hún 'sá undrunina í augnaráði frú Hupple, skrökvaði hún því fyrsta, sem henni datt í hug: ,,Stevi litli hafði dálítinn hlustarverk. Ég vil gjarnan fylgjast með hvernig hon- um líður.“ Bifreiðin flautaði ákaft og Dollý hraðaði sér út. HÚN hallaði sér aftur á bak í sætinu og reyndi að hvíla sig. Það var kalt í bifreiðinni og landslagið umhverfis var kulda- legt og ömurlegt. Húsið þeirra var í hverfi talsvert utan við borgina. ,,Já, auðvitað — það gæti ekki farið betur um ykkur," hafði Harold sagt, þegar hann heim- heimsótti þau, en það skein út úr málrómnum, að það væri öðru nær. Það lá alltaf við, að það 36 ■ fælist lítilsvirðing í spurningum Harods. ,,Hvernig líður börnun- um ? Hvernig líður ykkur í sveit- inni ? Hvernig líður ykkur þarna út frá ?“ Dollý var raunar nú fyrst farin að taka eftir þessu. Henni hafði líkað vel við Harold, en svo höfðu þau einu sinni hitt Kitzý heima hjá honum, og síðan hafði þeim aldrei verið boðið þangað, án þess að hún væri þar líka. Dollý þekkti Harold nógu vel til þess að geta ímyndað sér, hvernig hann talaði um þau við Kitzý. „Benett Langley ? Já hann er ákaflega aðlaðandi. Hann er bráðvel greindur og skemmtileg- ur í vinahóp. Það er leitt til þess að vita, að þú skyldir ekki kynn- ast honum, áður en hann kvænt- ist, því að þá var hann enn skemmtilegri. Það er ekki svo að skilja að ég sé að gefa neitt í skyn, en Ben hefur átt erfitt í seinni tíð. Þú veizt nú hvað laun ■menntaskólakennara eru lág, og Dollý virðist vera ein af þeim, sem eiga barn á hverju ári. Hún er auðvitað fyrirtaks stúlka, gæti ekki verið betri ..." Þó var því ekki þannig farið að Harold væri illgjarn, hann var aðeins einn þeirra manna, sem átti mikla peninga og virtist ekki hafa annað þarfara við þá að gera en halda samkvæmh Hann nefndi aldrei svo neinn mann að ekki HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.