Heimilisritið - 01.08.1953, Side 40

Heimilisritið - 01.08.1953, Side 40
vinna við það, ætti ég að þegja. Það er mér fullljóst. En í kvöld langar mig til að skemmta mér. Það er allt og sumt. Mig langar til---------“ „Til hvers langar þig Ben ?“ ,,Mig langar til að gleyma þessu öllu,“ sagði hann, og var allt í einu orðinn byrstur í mál- rómi. ,,Er nokkuð athugavert við það ?“ ,,Það fer eftir því, hvaða að- ferð þú notar til þess,“ sagði Dollý. Ben spurði ekki, hvað hún ætti við. Hún beið, en hann gerði ekki minnstu tilraun til að svara. Hún ákvað með sjálfri sér, að hún skyldi gera heiðarlega tilraun til að skernmta sér. En færi svo, að henni væri það ekki kleift, hafði hún upphringingu frú Hupple í bakhöndinni. Hún tók við vindlingi, sem Ben bauð henni, kveikti í honum og hugsaði málið. Yrði það hlut- skipti hennar að sitja úti í horni og fylgjast með fracnferði Kitzýar og Bens, myndi hún segja, þeg- ar frú Hupple væri búin að hringja: „Heyrðu Ben, frú Hupple er orðin óþolinmóð, litla barnið er alltaf að gráta.“ Eða: „Stevi er með hlustarverk,” eða : ,,Davi er með hita.“ Það skipti raunar engu máli, hvernig hún orðaði það, meira máli skipti. hvernig framhaldið yrði —. ,,Það er auðvitað engin hætta á ferð- um,“ myndi hún segja, ,,en það er bezt að ég fari heim. £g er hvort sem er orðin þreytt. Ef þú skemmtir þér vel, er ekkert því til fyrirstöðu að þú verðir eftir." Með þessu móti myndi hún fá að vita vissu sína. Ovissan var verri en allt annað. Eins og sak- ir stóðu, braut hún heilann um, hvort þau Kitzý og Ben hittust á laun, eða hvort þau hefðu í hyggju að gera það. Henni myndi líða betur heima, þar gæti hún að minnsta kosti fengið útrás fyr- ir gremju sína -með því að gráta —- eða sparka í húsgögnin. Ef Ben kysi heldur að fara heim með henni, þá myndi hún segja honum sannleikann á leið- inni heim. Hann yrði auðvitað hneykslaður, en hún myndi vera svo iðrandi að hann hlyti að fyr- irgefa henni. En ef hann vildi heldur vera eftir ? Ef hann reyndi að dylja feginleika sinn og segði, að ef hún væri áhyggjufull, yrði hún víst að fara ? Þau voru næstum komin að húsi Harolds. Dollý leit út um bílrúðuna. ,,Þarna geturðu lagt bílnum,“ sagði hún og benti á autt svæði milli vörubifreiðar og splunku- nýrrar einkabifreiðar. 38 HEIMILISRITÍÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.