Heimilisritið - 01.08.1953, Qupperneq 58
betri en hann hafði gert sér von-
ir um.
Nokkrum dögucn seinna kom
svarbréf frá Sir Oswald, þar sem
hann ítrekaði boð sitt og lagði
fast að Klöru að kora til Eng-
lands eins fljótt og hún gæti.
Hann lagði til að hún kæmi sjó-
leiðis; þau myndu aka til Sout-
hampton og taka á móti henni.
Klara fór inn í svefnherbergi
sitt til þess að skrifa Kára um
fyrirhugað ferðalag sitt. Ein-
hverra hluta vegna fannst henni
erfitt að skrifa þetta bréf. Hún
reyndi að fullvissa sig um, að
honu-m stæði á sa-ma —- að hon-
um myndi falla glensið í geð eins
og henni, en hvernig sem á því
stóð, gat hún ekki sannfært sig
um það til fulls. Það lá við að
hún fyndi til óttablandins kvíða,
þegar hún lokaði umslaginu. Hún
fann með sjálfri sér, að hún hefði
viljað óska að hún hefði aldrei
samþykkt uppástungu föður síns.
Hún sagði í bréfinu, að ef honuim
geðjaðist ekki að hugmyndinni,
skyldi hann senda símskeyti, og
hún m.yndi óðara hætta við allt
saman. Ef hún hins vegar heyrði
ekkert frá honum, myndi hún
koma og dvelja hjá Rawltonfólk-
inu eins og ráðgert væri.
Hún fékk föður sínu.m bréfið til
þess að láta það í póstinn, þar eð
hann ætlaði að ganga niður í
þorpið um kvöldið. Hann lofaði
því hátíðlega, að.hann skyldi sjá
um að það kæmist til skila, en
nokkrum dögum seinna, þegar
Klara sigldi áleiðis til Englands,
var bréfið ennþá í jakkavasa
hans.
En á cr.eðan gerðist ý.mislegt í
Oakfield Park.
Dalli varð æ sannfærðari um
að Katrín Manton væri í dular-
gervi frú Jones, þættist vera kona
brytans. Hann gerði sér far um
að gefa henni gaum, einkum þeg-
ar hún veitti því ekki athygli að
hann beindi rannsakandi augu-m
að henni. Hann mundi vel eftir
hreyfingu-m hennar og látbragði,
enda varð hann loks í engum vafa
um, að hún væri dóttir frú Gre-
gory Mantons.
En hvernig í ósköpunum stóð á
því, að hún var hér sem stofu-
stúlka og eiginkona einhvers
skrattakolls er talaði með ástr-
ölskum framburði og nefndist
Jones ?
Höfðu þau strokið saman ? En
þótt svo væri gaf það enga skýr-
ingu á því, að þau skyldu vera
sem vinnuhjú á Oakfield Park.
Þegar hann hafði verið í kunn-
ingsskap við frú Manton, hafði
hún sagt honum sitt af hverju um
sjálfa sig og líka um dóttur sína.
Hann vissi, að Katrín Manton var
56
HEIMILISRITIÐ