Heimilisritið - 01.08.1953, Page 62
Þegar Ralph var farinn, stóðu
þau Dalli og Katrín og horfðu
hvort á annað.
,,Þakka yður fyrir,“ gat hún
loks sagt. ,,Þetta var fallegt af
yður. Ég er yður •mjög þakklát."
Hann dró djúpt andann. ,,A
því átti ég sízt von, að sjá yður
hér secn vinnukonu, ungfrú Kat-
rín Manton."
Það var andartaks þögn, og svo
sagði hún lágri rödd :
,,Þér þekktuð mig þá ?“
,,Strax og ég kom og sá yður.
Þér afsakið þó ég hafi orð á því,
en mér finnst mjög svo undarlegt
að þér skulið vera hér í þessari
stöðu, ungfrú Manton."
Hún hné aftur í sæti sitt. Hún
hló eins og vofa og sagði: -
,,Já, það hlýtur áreiðanlega að
vekja undrun yðar.“
,,Og þessi Jones? — eða heit-
ir hann Jones ? — hvað um það,
ég er sannfærður um að hann er
ekki frekar bryti en þér stofu-
stúlka. Hvað eruð þið að gera
hér ? Eruð þið gift í raun og veru,
eða er þetta dónaleg spurning?"
Hún eldroðnaði. ,,H’vort sem
ég er það eða ekki, þá kemur
yður það ekki við.“
,,Nei, kannske," sagði hann
hæversklega. ,,En ég þori að
segja, að það kemur móður yðar
við. Vitið þér ef til vill, að hún
og fyrrverandi unnusti yðar, de
Seligny greifi, eru komin hingað
til Englands og dvelja á Savoy
Hóteli ?“
Henni varð svo bilt við þessi
orð hans, að það staðfesti rétt-
mæti gruns hans um, að frú
Manton vissi ekki um dvalarstað
dóttur sinnar. Það fannst honum
mjög svo ánægjulegt. Hann hafði
áður haft aðstöðu til að gera frú
Manton greiða, og hann vissi, að
hún launaði vel gagnlegar upp-
lýsingar.
,,Það verður aldeilis hlegið í
setustofunni í kvöld, þegar ég
segi þeim, að stofustúlkan þeirra
sé engin önnur en Kathleen Man-
ton, miljónaerfinginn, sem flestir
kunna skil á . . . eða er eftirnafn
yðar í raun og veru orðið Jon-
es ?“
Hún svaraði því engu, og hann
brosti. Málið var farið að verða
mjög svo skemmtilegt v:ðfangs.
,,Kæra mín,“ sagði hann um
leið og hann bauð henni sígar-
ettu og kveikti í hjá þeim, ,,ég
er feginn því að ég skyldi koma
hingað í sveitasæluna. Ég hef
ekki hugmynd um, hvers vegna
þið eruð í þessum grímudansleik.
En það er ég viss um, að við
höfum reglulega gaman af þessu
í kvöld."
Hjartað í Katrínu hætti að
slá. Ef upp um hana kæmist,
væri hætt við að Ralph færi að
60
HEIHILISRITIÐ