Heimilisritið - 01.08.1953, Side 65

Heimilisritið - 01.08.1953, Side 65
var biturleikahreimur í rödd hennar. , ,£g hlýt að telja þetta heiður fyrir mig.'* Hún hneigði sig lítið eitt. ,,Má bjóða þér sæti ?“ En hann settist ekki. ,,Ég fann eitt þessara demants- armbanda þinna í vasa Dalla Kovans, þegar ég var að taka til hjá honum í dag,'" sagði hann. Það varð þögn. ,,Jæja, gerðirðu það ?“ Rödd hans varð lágróma og* heiftarleg: ,,/Etlarðu ekki að bjóðast til . að gefa neina skýr- ingu ?“ ,,Er ég beðin um það ?“ ,,Þú veizt vel, að þú ert ekki beðin um neina fjandans skýr- ingu." ,,Þá tekst mér ekki að finna neina ástæðu fyrir þessum látum. Góði stilltu þig nú Kári. Mundu það, að síðast, þegar okkur lenti saman, kam Ralph upp og kvart- aði." Rödd hennar var ísköld. ,,Ég ætla mér ekki að vera með nein læti, eins og þú kallar það,“ sagði hann, en það var auðheyrt á raddhreim hans, að hann átti erfitt með að halda sér í skefj- um. ,,Ég veit ekki hvað var milli ykkar Kovans, en það hefur ber- sýnilega verið eitthvað náið, fyrst þú gafst honum armbandið. Þið hafið kannske unnið saman, fengizt við gripdeildir ..." ,,Og hvað, þótt svo hefði ver- ið ? Var það erindið við mig?" ,,Nei, ekki," sagði hann. ,,Sjálfsagt ætti þetta að vera mér áhyggjuefni, en svo er ekki. Það sem ég spyr þig hreint og beint um, er, hvort þið Kovan hafið verið elskendur eða ekki !“ HÚN STARÐI á hann og hvítnaði og roðnaði á víxl. Hún kom ekki upp orði, en hún stóð upp af rúminu, gekk beint að honum og sló hann utan undir eins fast og hún gat. Hann starði á hana-á móti,'þegar hún gaf honum kinnhestinn, en hann sýndi engin viðbrögð. ,,Þetta er ekkert svar," sagði hann. ,,Þetta er eina svarið, sem þú færð." ,,Eg skil." Þau einblíndu á hvort annað, hötuðust, en þó brauzt frumeðlið í gegn um gagnkvæmt hatrið, því nær óhamin aðdráttarorka. ,,Það virðist vera tilgangslítið fyrir mig að vera hér lengur." ,,Já.“ ,,En hvað um það, ég sé ekki, hvers vegna ég skyldi fara." ,,Eg skil þig ekki." (Frh. í aukoheftinu — sumarheftinu) ÁGÚST, 1953 63

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.