Heimilisritið - 01.07.1956, Page 25
Klukkan tifaði hljóðlega og
iaktfast á náttborðinu. Hún hlust-
aði eftir andardrætti Bents, sem
gaf henni til kynna, að hann var
einnig vaknaður. Hún sneri höfð-
inu örlítið frá honum og opnaði
augun. Það var engu líkara en
ósýnilegar hendur sviptu til hlið-
ar gagnsæju'm þokuhjúp, svo
nakin fegurð hins rísandi dags
gat smogið inn um opinn glugg-
ann til hennar. Hún brosti hik-
andi, því var ekki eins og eitt-
hvert loforð fælist í allri þessari
fegurð? Lífsorka, sem hún gat
höndlað og geymt og notað sem
vopn gegn köldu, þungu óttatil-
finningunni, sem bjó innra með
henni.
Gauksklukkan í barnaherberg-
inu sló fimm hvell högg. Hún
minntist þess, að Karsten hafði
einmitt valið þessa klukku, vegna
þess, að hann hélt því fram að
litli gaukurinn ,,kæmi manni í
gott skap." Og þau höfðu öll ver-
ið honum sammála. Fimm glað-
vær kuk-kuk. Hún lokaði augun-
um og minntist þess, að gaukur-
inn átti að geta sagt fyrir um
óorðna hluti. Hann hafði verið
spurður, hve mörg ár ennþá . .. ?
Það var eins og hann segði fimm.
Fimm ár ennþá, væri það ekki
dásamlegt? Eftir fimm ár yrði hún
fertug. Þá yrði Lena 18 ára, og
myndi þá ekki þarfnast móður
JÚLÍ, 1956
sinnar jafn tilfinnanlega og hún
gerði nú.
Eftir fimm crr yrði Karsten 14
ára. Fjórtán ára drengur var fær-
ari um að bjarga sér en lítill níu
ára snáði. Hún gæti blásið honum
meiri sjálfstæðiskermd í brjóst. Og
Bent ... þau gætu komið í verk
mörgu af því, sem þau höfðu svo
oft talað um að gera, ferðast sam-
an og komið heim saman. Lesið
margar bókanna, sem biðu þess
að vera lesnar og rökræddar ...
fimm ár gætu gert mikinn mun.
Ó, en hvað hún var heimsk. Þetta
var þó aðeins gaukur í gauks-
klukku og það var í dag sem hún
átti . ..
Bent færði sig hljóðlega svo
miklu nær, að hann gat umlukið
litlu, köldu höndina hennar með
sinni. Hann vissi, að hún var
vöknuð. Hann vissi líka, að hún
kærði sig ekkert um að tala, og
þau höfðu líka sagt allt, sem sagt
yrði. Hún hafði vísað á bug öll-
um hikandi tilraunum hans til að
segja henni, að ef til vill væri
ekkert að. Allt sitt líf hafði hún
kosið að horfast í augu við stað-
reyndirnar og búa sig undir hið
versta.
Hann vissi ekkert um þá sann-
færingu hennar, að bezt væri að
vera við því versta búin, en hann
dáðist að hæfileika hennar til að
framfylgja þeirri lífsreglu, og hann
23