Heimilisritið - 01.07.1956, Page 60

Heimilisritið - 01.07.1956, Page 60
DAUÐINN A SJÚKRAHÚSINU Stutt, spennandi framhaldssaga ejtir PATRICK QUENTIN. -----;-------------* Hún þagnaði þegar dyrnar opn- uðust og Gregory Venner kom inn. Hann var ’dauíur í dálkinn og sorgmæddur og það var aug- ljóst, að hann var niðurbrotinn maður. Hún gleymdi reiði sinni út í Oliver og gekk til Venners og það var djúp og innileg samúð í svip hennar. „Mér þykir þetta mjög leitt, yð- ar vegna, hr. Venner. Dr. Knud- sen var \rinur yðar og ..." „Þakka yður fyrir, ungfrú Heath." Gregory Venner hristi höfuðið vandræðalega. „Já, ég get tæpast trúað þessu. Ég mun sakna hans innilega. Hann var mér mjög góður. Ég var heima hjá honum í hádegisverðarboði í gær, skal ég segja yður. Hann virtist hress og kátur þá. Við vor- um að tala um að fara til Sviss- lands í sumar. Það hefur alltaf verið draumur minn, að klífa Jungfrau-tindinn, og nú var búið að ganga frá svo að segja öllu, en ..." Hann sneri sér snöggt undan. Oliver Lord var nú orðinn ró- legri og sagði með kæruleysi, sem hljómaði alls ekki sannfærandi: „Ég ætla þó að vona, að þér hafið ekki beinlínis verið sakaður um að hafa myrt yfirlækninn, eins og ég hef verið." „Ég get ekki látið mér til hugar koma, að nokkur myndi saka mig um að hafa myrt dr. Knudsen." Aðstoðarmaðurinn leit á hann með virðuleik og myndugleik í 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.