Heimilisritið - 01.07.1956, Page 54

Heimilisritið - 01.07.1956, Page 54
sem maður má reikna með. Þeg- ar menn byrja að reikna í milljón- um, sjá þeir strax fyrir sér höll, lystisnekkju og endalaust óhóf, en þegar maður reynir að ímynda sér 4 milljarða gróða af einu ein- asta fyrirtæki, þá svimar mann og maður getur ekki fylgzt með lengur. Skárri er það nú bitinn, sem fer í skatta, segir maður ósjálfrátt. En Gulbenkian var ekki maður, sem kærði sig um að gefa skattayfir- völdunum peninga sína. Fyrir- tæki hans voru dreifð um allan hnöttinn, og af langri lífsreynslu lærði hann, að fara svo hárná- kvæmum höndum um óhemju tekjur sínar, að hann losnaði að mestu við að greiða skatt. Lönd eins og Venezuela, Panama, Tangier og aðrir staðir með litla eða enga skatta, voru aðalaðset- ur gróðafyrirtækja Gulbenkians og milljónirnar runnu þúsundum saman óskertar inn í fjárhirzlur hans. Olíuyfirráðasvæði Gulbenkians voru þau umfangsmestu sem um gat í enka eign. Þegar forstjóri stærsta olíuhrings heimsins. Walter C. Teagle frá Standard Oil Amerika var einu sinni kynntur í samkvæmi sem hinn ókrýndi olíu- konungur okkar tíma, svaraði hann brosand: ,,Nei, herrar mínir, það er til maður, sem hefur miklu meiri áhrif í hinni alþjóðlegeu olíuverzlun en ég. Nafn hans er Gulbenkian, og hann vill ekki einu sinni veita mér viðtöku þó ég biðji hann um viðtal. Hann hefur hreint og beint ekki tíma til þess að fást við smælingja eins og mig." Hve mikil voru þá auðæfi Gul- benkians? Glöggir fjctrmálamenn gátu þess til, að varlega metið mundi upphæðin nema á milli 7 milljarða króna — sjö þúsund milljóna króna — og gjörsamlega ónefnanlegrar tölu. Enginn vissi það fyrir víst. Það er einnig vafa- samt, að Gulbenkian hafi í ell- inni haft fullkomna hugmynd um sín mörgu iðnaðar- og verzlunar- fyrrtæki. Um einkalíf hins dularfulla milljarðamærings liggja fyrir upplýsingar af mjög skornum skammti. Aðeins liðlega tvítugur að aldri kvæntist hann armenskri stúlku. Þrátt fyrir milljóna-auðæf- in varð það ekki hamingjusamt hjónaband. Fáum árum eftir að dóttirin Rita og sonurinn Nubar fæddust, yfirgaf Gulbenkian konu sína. Dóttirin giftist síðar armensk- um aðalsmanni, sem varð, er tímar liðu, einn af aðalumboðs- mönnum Gulbenkians í París. Sambúðin við soninn einkennd- ist af eilífum erjum. Nubar, sem enn þann dag í dag stjórnar skrif- 52 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.