Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 56

Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 56
stórum, grænum grasflötum og fá- gætum blómum. f setustofu Gul- benkians voru einföld húsgögn. Þrcrtt fyrir óhemju auðæfi sín hafði hann haldið húsgögnum gistihússins og aðeins bætt við stóru skrifborði og nokkrum skjalaskápum úr stáli, sem gáfu stofunni skrifstofulegt svipmót. Ekkert hinna frægu málverka hans eða annarra listmuna, prýddi herbergið. f herbergi við hliðina bjó hinn franski einkarit- ari hans, Jeanne Theiss, töfrandi ungfrú ca. 40 ára gömul. I öðru herbergi á sömu hæð unnu tveir portúgalskir einkaritarar (kven- menn) og í þjónustuiiðsálmu gisti- hússins bjó hinn hvít-rússneski þjónn Gulbenkians, Jean Karma- zin, og grísk kona hans. Karmazin nuddaði húsbónda sinn daglega og kona hans gerði hreint í híbýl- um Gulbenkians, sem ekkert af þjónustuliði gistihússins hafði að- gang að. Á síðari árum lifði fjármálajöf- urinn eftir tímaáætlun, sem fylgt var af sjúklegri nákvæmni. Hann fór á fætur kl. 8.30. Borðaði morg- unmat, sem var crvaxtasafi, soðn- ar gulrætur og tómatar. Eftir að hafa lesið morgunblöðin fór hann í sína daglegu ökuferð. Hann átti engan bíl sjálfur, en hafði komizt að samkomulagi við leigubíla- slöð um að láta sig hafa gamlan DeSoto með bílstjóra til umráða, svo oft sem hann óskaði. Með stói sem hægt var að leggja saman, meðferðis, ók Gulbenkian venju- lega út í einhvern lystigarðinn í Lissabon eða tii einhvers fáfarins staðar í nágrenni borgarinnar, og þarna dvaldi hann mestan hluta morgunsins, við að fara yfir póst- inn sinn og áforma nýjar gróða- brellur. Oft fór hann úr skóm og sokkum og lét portúgalska sól verma nakta fætur sína, en þjónn- inn bandaði dyggilega burt nær- göngulum flugum, sem trufluðu frið milljarðamæringsins. Kl. 13.00 fór Gulkenkian aftur til gistihússins og sendi miðdeg- isverðarpöntun sína símleiðis nið- ur í eldhúsið. Á mínútunni kl. 15.00 gekk hann niður í hinn stóra matsal gistihússins, en þar var kringlótt homborð alltaf tekið frá fyrir hann. Fyrir aftan borðið var lítill pallur og á honum hæg- indastóll með glitofnu áklæði. Frá þessum stað gat Gulbenkian séð yfir allan matsalinn og allir gátu séð hann. Þetta .var það eina samband, sem hann hafði bein- línis við umheiminn. Miðdegis- verðurinn var mjög fábrotinn, hrísgrjón eða spaghetti, dálítill fiskur, grænmeti og ostur og á- vextir í ábæti. Hann stóð yfir í nákvæmlega 45 mínútur og í þeim var innifalinn sá tími, sem 54 HEIMILISRITIÐ'

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.