Heimilisritið - 01.07.1956, Qupperneq 57

Heimilisritið - 01.07.1956, Qupperneq 57
fór í að reykja einn af þeim þrem vindlingum, sem hann reykti dag- lega. Síðari hluti dagsins fór í að lesa fyrir bréf og svara því stöð- uga flóði símskeyta, sem á degi hverjum barst frá hinum mörgu umboðsmönnum hans og skrif- stofum um allan heim. Kvöldverð- urinn hófst kl. 21.15. Að því und- anskildu, að í stað fisksins kom smá kjötréttur, var matseðillinn sá sami og um miðjan daginn. Eftir kvöldverðinn gekk Gulbenkian í nákvæmlega 10 mínútur fram og aftur á svölum gistihússins, áður en hann fór inn í hýbýli sín til þess að halda áfram vinnu sinni við að ráðstafa mestu auðæfum heims. K1 24.00 slokknuðu ljósin í svefnherbergi hans eftir dag, sem ekki hafði verið sérlega frá- brugðin deginum áður eða kom- andi degi. Ef til vill hafði nýtt dýr- mætt málverk verið keypt eða nokkrar milljónir græddar á olíu- samningi. En hvaða ánægju gat það veitt manni, sem átti fyrir stærsta einka-listasafn heimsins og svo mikil auðæfi, að hann hefði getað greitt allar danskar þjóðskuldir án þess tæplega að merkja, að nokkru munaði á bankainneignum hans. Þau þrettán ár, sem Gulbenkian dvaldist á Hótel Aviz, varð hin hámákvæma stundartafla hans aðeins tvisvar fyrir truflunum. I fyrra sinnið, þegar efnuð hefðar- kona frá Manilla kom til þess að tala við Gulbenkian. Hann neit- aði að veita henni áheyrn. Með aðstoð gistihússtarfsmanns, sem hafði komið sér í mjúkinn hjá milljarðamæringnum, heppnaðist þó að lokum að koma því svo fyrir, að þau mæltu sér mót og Gulbenkian bauð henni þriggja mínútna viðtal. Hefðarkonan, sem þá var orðin svo viti sínu fjær af reiði yfir þeirri útreið, sem hún hafði fengið hjá Gulbenkian, stóð kyrr í dyrunum að vinnuher- bergi milljarðarmæringsins og hreytti eftirfarandi kveðjuorðum út úr sér: „Hr. Gulbenkian, ég kom til Lissabon til þess að tala við yður um mikilvæg viðskipti, en nú er ég hætt við að gera það. Þér eruð mjög ríkur. Það er ég líka. Þér eruð mjög mikilsmetinn mað- ur hér. Það er ég líka í Manilla. Mismunurinn er sá, að ég er lady, en þér eruð ekki séntilmað- ur.” Síðan sneri hefðarkonan sér við og skellti dyrunum við nefið á hinum orðlausa Gulbenkian. 1 seinna sinnið röskuðust settar reglur dagsins, þegar portúgalska stjómin hafði farið þess á leit við Hótel Aviz, að það léti spánskri stjórnarerindreka sendí- nefnd, sem átti að gera mikil- JÚLÍ, 1956 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.