Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 61

Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 61
ícrsi sínu. ,,Heath lögregluforingi heíur yíirheyrt mig, og hann segir að ekki komi til mála, að ég hafi getað átt nokkum hlut að máli í þessum harmleik. Hann segir að eitrinu hafi verið hellt út í kaffið. Þegar bakkinn var sendur upp til skrifstofu yfirlæknisins, var ég úti að borða hádegismat með Peters, og þegar ég loks kom hingað, var dr. Knudsen kominn á skrifstofu sína og var þar ásamt — frú Broderick." „Þér vissuð þá líka, að frú Broderick var þar?" sagði Rona. ,,Já, svo sannarlega. Henni liggur mjög hátt rómur. Bæði hjúkrunarkonan og ég heyrðum til hennar í gegnum vegginn inni í svæfingastofunni." Gregory Venner fitlaði við úrfesti sína. „Það var að vísu mjög erfitt að þurfa að nefna þetta að dr. Brode- rick viðstöddum, en ég gat ekki verið að leyna þessu fyrir lög- reglunni." Ronu létti þegar hún heyrði það, að Venner hafði tekið á sig ábyrgðina af því, að segja Jim frá heimsókn frú Brodericks til yfir- læknisins. Og þó hafði hún mikla samúð með honum. Gregory Venner hafði tilbeðið og dáð dr. Knudsen, en hcmn óttaðist dr. Broderick meira en nokkurn ann- an. Hún gerði sér það ljóst, að það hlaut að hafa verið hin mesta þolraun fyrir hann, að þuría að segja dr. Broderick, að eiginkona hans hefði að minnsta kosti haft tækifæri til þess að fremja glæp- inn. Hún gerði sér einnig ljóst, að eftir lát dr. Knudsens, var Venner algjörlega háður vilja dr. Brode- ricks og fyrirætlunum hans um að endurskipuleggja starfsemi sjúkrahússins. Dr. Broderick hafði lagt sig allan fram til að tryggja sem hagkvæmastan rekstur sjúkrahússins, og hann hafði komizt að þeirri niðurstöðu, að Gregory Venner var ekki hæfur til að gegna því tvöfalda hlut- verki, að vera aðstoðarmaður dr. Kundsens og skjalavörður sjúkra- hússins. Hvað eftir annað hafði forstjórinn reynt að losa sig við Venner, og honum hefði tekizt það, ef dr. Knudsen hefði ekki ávallt stutt manninn, sem eitt sinn hafði bjargað lífi hans. Nú leit einna helzt út íyrir það, að þessi skelfilegi dagur yrði ekki aðeins til þess, að Venner missti bezta vin sinn, heldur einnig stöðu sína v:ð sjúkrahúsið. Aðstoðarmaðurinn stóð kyrr í sömu sporunum og horfði á hana óstyrku og hugsandi augnaráði. Loks sagði hann: „Ungfrú Heath, ég — ég þarf að leggja fyrir yður viðkvæma spurningu. Það varðar nokkuð, JÚLÍ, 1956 59

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.