Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 33

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 33
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 29 Edith stundi þungan og lofaði að veita hon- um það Iið, sem hún mætti. »Gerða litla er hjer komin og vill finna ungfrúna,« mælti Karólína, sem komið hafði inn óvænt, og Richard rauk á fætur við orð hennar. »Er telpan úti í þessu voðaveðri?« hrópaði Edith og stóð á fætur. »Láttu hana koma inn,« mælti Richard og varð Edith við þeirri ósk hans. Rjett á eftir kom Gerða inn. Kveikt hafði verið í herberginu. Bjarminn af ljósunum Ijek um Gerðu. Hún var föl ásýndum, en ánægju- leg á svip. Dökka hárið, sem gægðist fram undan húfunni, var blautt og gljáði því meir en vant var. Hún nam staðar rjett fyrir inn- an dyrnar til þess að bleyta eigi hina skraut- legu gólfábreiðu. Hún var komin úr renn- blautu kápunni, en var mjög blaut á fótum, þar eð hún hafði engar skóhlífar. »Guð minn góður, barn mitt! Hvað knýr þig til að fara svona langa leið í þessu fár- viðri?« spurði Edith. »Mamma þíii er víst ekki veik?« »Nei, mamma er frísk, svo er guði fyrir að þakka, en ungfrúin vildi fá skyrtur háskólakenn- arans í dag, og því er jeg hjer komin.* Litla telpan brosti mjög ánægjulega og rjetti Edith fataböggulinn. »En, barnið gott. Rað lá ékki svo lífið á, að þú þyrftir að homa í þessu steypiregni,« mælti Edith og leit á fætur barnsins. »Legg- ist þú veik, verð jeg hugsjúk út af því.« Gerða fullyrti, að henni mundi ekki verða neitt mein að þessu. »Jeg ætla að aka barninu heim í ljettivagni,« mælti Richard. Edith var því samþykk og að stundarfjórð- ung liðnum hjelt vagninn af stað. Richard yrti eigi á Gerðu í fyrsíu, en þetta var í fyrsta sinni, að hún ók í vagni. Hún hafði einnig mjög gaman af því og þagði full hrifningar. Pegar þau höfðu farið all-langan spöl, spurði Richard skyndilega; »Efnirðu alt af Ioforð þín?« »Já, alt af,« svaraði Gerða. »Ef að þú lofaðir að gleyma mjer ekki, mundirðu efna það?« »Vissulega.« »Viltu lofa mjer því?« »Já, það vil jeg.« »En verið getur, að jeg fari langt í burtu og komi ekki aftur fyr en eftir fjöldamörg ár. Ætlarðu samt að muna mig, þótt þú að eins hafir sjeð mig tveim sinnum?« »Já, það ætla jeg.« »Gefðu mjer hönd þína upp á það.« Gerða lagði hönd sína í lófa unglingsins. Hann þrýsti hana fast og mælti: »En hvernig ætlarðu að fara að því, að gleyma mjer ekki?« »Pað verður eigi örðugt. Jeg hugsa til þín kvölds og morgna, þegar jeg geri bæn mína,« svaraði Gerða, sem virtist alveg eðlilegt að þúa hann, »og þá mun jeg minnast þín eins og þú varst, þegar jeg sá þig fyrsta sinni; þá er þú horfðir svo lengi á mig, að mjer fanst jeg sjá augu þín marga daga. Veistu að mig hefir síðan oft sinnis dreymt um þig og þú leist svo kynlega á mig. Af hverju gerðirðu það?« »Af því að mjer fanst jeg hafa sjeð þig áð- ur,« svaraði Richard. »F*að var harla einkennilegt, því að vissulega var það ekki svo. Hvernig gat þjer komið slíkt í hug?« »Mjer fanst þú líkjast einni konu, sem er dáin.« Vagninn nam nú staðar. Richard tók Gerðu niður úr honum, og um leið og hún ætlaði að fara inn um hliðið, mælti hann: »Gefðu nánar gætur að mjer. Guð veit, hvort við sjáumst framar.« Gerða lagði hönd sína í lófa hans og horfði lengi á hann. Rví næst mælti hún og brosti ástúðlega: »Nú skal jeg aldrei gleyma ásýnd þinni. Vertu sæll.« Hún kipti að sjer hendinni og hljóp inn um llliðið.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.