Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 83

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 83
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 70 ið slitrótt og Semjan heyrði afa segja: *Já, vinir minir, það er enginn leikur!« — Og bændurnir svöruðu: »Nei, það er það ekki!« — Svo urðu raddir þeirra daufar og ógreini- legar, líkt og býilugnasuða. Rjett á eftir fóru rauðir hringir að dansa fyrir augum Semjans og síðan brá Usjupka-ánni fyrir; fyrir handan hana sást greinilega garðurinn prestsins. Sem- jan ætlaði að stökkva út í ána, þótt vatnið væri kalt, og synda yfir um, en gamli maður- inn þreif i fótinn á honum og sagði: »Nei, það er enginn leikurl* — Síðan fóru rauðu og grænu hringirnir að dansa aftur, og þeir urðu svo margir, að þeir runnu saman í eitt. Semjan svaf eins og steinn. VI. Hann vaknaði snemma morguninn eftir. Pað var skýjafar á loftinu og k2ldur vindurinn rauk með byijum inn í slokknað bálið, þyrlaði ösk- unni út milii viðarstubbanna og dreifði henni víðsvegar. Bændurnir voru allir á burtu og ókunni maðurinn lá f hnipri á jörðunni. Sem- jan reis upp. »AfiU kallaði hann til gamla mannsins, en fjekk ekkert svar. »Hvar eru bændurnir?« datt honum í hug, og alt í einu varð hann hræddur um afa. .Vindurinn ýlfraði og þeytti burt ösknnni, það skrjáfaði og urg- aði í nokkrum hálfbrunnum greinurn og langt, langt utan af sljettunni bárust eins og ömur- legar stunur til hans. »Aíi!« kallaði Semjan aftur, en vindþyturinn yíirgnæfði köll hans. Augun lokuðust móti vilja hans og höfuðið hneig niður á aðra öxlina. Hann lagðist út af aftur og úr öllum áttum þaut við í eyru honum: s —s—s—s. Hann dreymdi eitthvað óljóslega utn, að ræningjar væru komriir og hefðu drepið gamla nsanninn. Svo virtist hon- um, að hann vera kominn að þorpshliðinu heima, og að einhver varnaði honum inngöngu, en drægi hann með sjer út á víða völlu; þar stóð stórt hús. »Nú, svo þú ætlar heim!« er aagt með hryssingslegri rödd. Maður með ein- kennishúfu á höfði hellir heitri kálsúpu í munn- inn á honum, langt niður í hálsínn. Og súp- an er svo sjóðheit, að það fer að loga innan í honuni. Höfuðið þrútnar út af reyknum og barkinn herpist saman. Semjan er alveg að kafna. — — Við það vaknaði hann. Við hlið hans situr ókunni maðurinn og hristir höfuðið, efablandinn á svip. »Hvernig líður þjer, drengur tninn?« spyr hann og legg- ur hendina á enni hans. Uppi yfir sjer lítur Semjan þokudrungað loftið, þunt, grátt skegg og tvö dapurleg augu. »J*ja, vinur minn. Rú ert víst ekki heilbrígður?« — »Afi!« var alt, er Semjan gat sagt. »Nú-nú, stúfur, reyndu að standa upp!« — Gamli maðurinn lyfti hon- um upp, setti haun á kuje sjer og Ijet hann halla höfðinu að brjósti sjer. »Reyndu nú að jafna þig, svo við getum komist dálítið lengra, því ekki dugar að deyja hjer. Guð mun hjálpa okkur!« Að klukkustundu liðinni stauiuðust þeir of- urhægt niður eftir veginum og hjeldu hvor ut- an um annan. Gamli maðurinn varð að styðja Senijan, því hann var svo óstyrkur, að hann gat ekki gengið einsamall. »Verst að það er svo langt til bæjarins,« sagði gamli maðurinn. »Rú verður að fara á sjúkrahúsið. Rað er stór munur með þig eða mig: Rú getur að likindum beiðst inngöngu þar, en mjer er best að láta sem allra minst sjá mig í bænum; best af öllu, að jeg ekki kæmi þar.« Eftir litla stund nam Semjan staðar og hneig niður. »Afi, fæturnir vilja ekki leugra — lof- aðu mjer að bvíla m'g ofurlitla stund!« — »Við skulum þá heldur fara þarna inn í skóg- arjaðarinn — þar er skjól. Styddu þig við mig — svona! Nú höldum við af stað!« Reir settust í rjóðtir í skóginum og gamli maðtirinn safnaði santan kvistum og iaufi handa drengnum að liggja á. »Reyndu nú til að sofna dálitla stuttd; það getur-skeð, að þjer skáni við það.« —■ »Afi,« sagði Semjan með bæn- arróm, »farðu ekki frá mjer, svo jeg liggi hjer einsamall. Farðu ekki fiá mjer, afi!« Hann fór að gráta beisklega, en þá voru kraftarnir þrotnir. Alt fór að hringsnúast á flugaferð í kringum hann og það var eins og klipið væri með töngum í gagnaugun. »Heim, heim!« stundi hann nokkrum sinn- unt og leitaðist við að lyfta blýþungu augna- lokununt, en hann gat ekkert greint lengur; alt stóð í ljósum logum kringum hann. Stund- um virtist honum hann liggja meðal ókuunra niaima í óktinnu húsi. Einu sinni sá hann móður sína greinilega, og í annað skifti busl- aði hann í sefinu við Usjupka-ána. Svo komu ókunnu mennirnir altur og einn þeirra sagði eitthvað við hann, en Semjatt svaraði engu, — hann var að leita að afa og gat ekki fundið hann. — Dagur og nótt runnu saman í eitt, og loks. lauk Semjan upp augunum og var með fullu ráði. Hann lá í járnrúmi inni í hvítmálaðri stofu. Hann horfði á hvítt loftið uppi yfir sjer; á því var gulur blettur eftir regnvatn, sem lekið hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.