Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 49

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 49
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 45 IV. Vikur liðu án þess að ungmennin tvö gáfu gaum að því, að tímans hjó! rann hratt með þau og ef til vili með hamingju þeirra. Dögum saman gátu þau eigi talast við, en litu hvort ti! annars brosandi, hýrum augum. Pá er Milly og frú Smith mágkona hennar voru eigi heima, voru þau Richard og Gerða saraan. Pau bygðu þá ótal skýjaborgir, eins og þús- undir elskenda hafa gert áður og munu gera síðar. Dag nokkurn, þá er Gerða var ein heima á Lislehæð og Richard heimsótti hana að Iok- inni vinnu, barst talið að fortíðinni og atburð- um þeim, sem gerst höfðu á þeim átta árum, sem þau voru eigi saman. Gerða hafði eigi frá mörgu að segja, því að líf hennar hafði eigi verið tilbreylingaríkt. Hana Iangaði til að Richard segði sjer frá, hvernig það hefði gerst, að hann, sem áður var óbreyttur litarasveinn, væri orðinn stjórn- andi svo stórrar verksmiðju. »Til þess rjettilega að geta dæmt um Iíf mitt,« mælti Richard, »verður þú að kynnast því frá því að pabbi kvæntist í síðara sinnið. Pá er mamma dó, átti hann ekki neitt og við fengum því engan móðurarf systkinin. Ári síðar kvæntist hann Antoníu Hjort, dótt- ur auðugs verksmiðjueiganda. Hann fjekk all- mikinn heimanmund með henni og gat þá komið fjármálum sínum í gott horf. Brúðkaupið var haldið á Woxnesi, eignar- jörð Hjorts verksmiðjueiganda. Jeg var þá í lyfjabúð. í nóvember, mánuði eftir giftinguna, kom pabbi heim með hina ungu konu sína. Hann tók mig nú úr lyfjabúðinni. — Pað var að kveldi dags, sem pabbi fór með mig inn til stjúpu minnar, og þeirri stund gleymi jeg eigi. Jeg var nýorðinn fjórtán ára og var all-þroskaður andlega og líkamlega. Antonía sat í legubekk. Lampinn dreifði daufu skini um herbergið, en alt ljósmagn hans ljek um hina ungu konu, en hún var afar gáfuleg ásýndum og mjög fríð sýnum. »Antonía, hjer er Richard,« mælti pabbi. Hún hóf nú upp höfuð sitt og hvesti á mig dökkbrún augun; blíðublær ljek um þau og lýstu svo miklum hjartagæðum, að það var sem engill birtist þar sjónum manns. Hún rjetti mjer örfandi hendina og sam- stundis náði hún valdi á hinum ákaflynda sveini. Jeg greip litlu hendina og kysti hana. Með nokkrum látlausum vinarorðum bauð hún mig velkominn og sagðist af fremsta megni ætla að ganga mjer í móðurstað. Hún, sem var svo ung, feimin og ófram- færin, eins og hún væri nýkomin af barnsaldri, mælti þessi móðurorð við mig, sem lengi hafði átt við óánægju og gremju að búa. Orð hennar höfðu enn meiri áhrif en feg- urð hennar. Jeg gat grátið af að hugsa til þess, að þessi töfrandi vera væri eiginkona föður míns. Ó, mig grunaði þá eigi, hve stutt lífsbraut hennar yrði, Alt fyrsta árið, sem jeg var heima, Ias jeg og vann af mesta kappi. Antonía hvatti mig til þess. Vorið, sem jeg varð fimtán ára, var jeg fermdur. Antonía reyndi til þess, að fá föður minn til að láta mig ganga mentaveginn, en allar fortölur hennar urðu árangurslausar. Dag nokkurn kallaði faðir minn mig til sín. Pá hafði hann ákveðið, að jeg skyldi verða litari. Jeg átti þá að verða handiðnamaður. Gerða, jeg vil eigi segja þjer, hvað okkur fór á milli. — Mjer varð þungbært að skilja við æskuheimili mitt. Faðir minn var úti, þá er jeg gekk inn í stofuna til þess að kveðja Antoníu. Jeg sá vott um tár á andliti hennar. Hún rjetti mjer hönd sína og mælti: »Jeg get eigi með orðum lýst, hve mig tek- ur það sárt, að gela eigi orðið þjer að neinu liði. Pessi stund er mjer sár og mjer finst sem þetta sje mjer að kenna. Jeg hefi eigi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.