Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 42
38 NYJAR KVÖLDVÖKUR. Nú fanst Marianne sem sóiin hefði hætt að skína og lífið væri orðið myrkt og örvænting- arfult á svip. Marianne var samt að eðlisfari svo laus við alla eigingirni, að hún hugsaði að eins um þá hagsmuni, sem dóttir hennar hefði af þessum aðskilnaði, þá er fyrsti sársaukinn hafði vikið fyrir íhuganinni. Hún gleymdi sjálfri sjer, og hugur hennar snerist að éins um þau ham- ingjuspor, sem hún vonaði að dóttir hennar mundi nú eiga f vændum. Hún myndi kynn- ast heirninum og læra margt nytsamt. Yfir þessum hugsunum gleymdi hún sorg sinni og sætti sig við örlög sín. Hún vann, vonaði og bað fyrir barni sínu. II. í nágrenni Lundúnaborgar var jarðeign, Lisle- hæð að nafni, sem stórauðugur verksmiðjueig- andi, eða öllu heldur verslunarfélagið Smith & Son, átti. Eldri Srnith var faðir konu Strömbergs. Rað var við lok ágústmánaðar. Á stóru veggsvölunum, sem þaktar voru vafningsviði, sátu ung stúlka og barn. Unga stúlkan virtist lesa af kappi í bók, sem lá á borði fyrir fram- an hana. Barnið sat á skemli við fætur henn- ar og ljek sjer að stórri brúðu. Umhverfis þær var alt kyrt og rótt. Rað var sem engar aðrar lifandi verur væru í þessum fagra sum- arbústað. Vagnskrölt heyrðist í nokkurri fjarlægð. »Nú er mamma að koma,« mælti barnið og leit á ungu stúlkuna. »Nei, Elísa, það er að eins skrautvagninn, sem kemur aftur,« svaraði Gerða. »Rú veist, að mamma þín kemur ekki fyr en að nokkr- um dögum liðnum.® »Rað er leitt.« Elfsa stóð á fætur, lagði handlegginn um háls ungu stúlkunnar og bætti við: »Mig laíigar svo mikið til þess að fara og leika mjer við Tomma. Mi jeg það? Við skulum ekki fara út úr garðinum.* »Farðu þá,« mælti Gerða. »Jeg kem rjett á eftir til að líta eftir ykkur.« Elísa litla kysti Gerðu, ldappaði saman lóf- unum og stökk af stað. Stundarkorn Ieið svo að hún leit eigi upp frá bókinni; hún var svo sokkin niður í lest- urinn, að hún tók ekki eftir, að ungur maður nálgaðist hana. Pá er hann var alveg kominn að svölunum nam hann staðar og virti fyrir sjer ln'ð íbygna, fríða andlit ungmeyjarinnar. Hin óvenjulega fegurð þess hreif hann. Er hann hafði lengi staðið þannig, gekk hann nær. »Fyrirgefið, en mig Iangaði til að vita, hvort herra Smith eldri sje heima,« mælti komumað- ur og heilsaði. Gerða leit óttaslegin upp við hljóm þessar- ar raddar. Ungi maðurinn stóð á svalagang- riðinu og studdi hendinni á handriðið. Rá er Gerða kom auga á hann, stökk hún á fætur, varð fyrst náföl, síðan stokkrjóð, gekk nokkur skref áfram og hrópaði: »Richard!« Síðan nam hún staðar, leit niður og auðsætt var á svip hennar, að hiín var í mestu vand- ræðum. í einni svipan var ungi maðurinn kominn upp á veggsvalirnar. Svipur hans lýsti undrun. »Hvað? Rjer þekkið mig,« mælti hann. »Hvar og hvenær höfum við sjest?« Hann ávarpaði hana auðvitað á ensku. »í Svíþjóð höfum við sjest. Síðan eru átta ár. Þjer báðuð mig þá að minnast yðar og jeg hefi eigi gleymt loforði mínu,« mælti unga stúlkan á sænsku. »Fyrir átta árum . . . í Svíþjóð, en þá vor- uð þjer að eins barn.« »Já, og auk þess mjög fátækt barn.« »Svo!« Richard rifjaði upp fyrir sjer, en gat eigi minst fátæka barnsins. »Jeg hefi dyggilega geymt minningu yðar, en þjer hafið.alveg gleymt hinni fátæku Gerðu,« sagði ungmærin með angurblíðu brosi. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.