Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 84

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 84
80 NÝJAR KVÓLDVÖKUR. niður. Hann sá líka ofurlítið grannvaxið, blað- laust trje, er riðaði fram og aftur fyrir utan gluggann og hugsaði með skelfingu: »Nú er jeg kotninn aftur á stöðina!« Og hánn ætlaði að stökkva á fætur og hlaupa sinn veg, en þá gat hann hvorki hrært legg nje lið og höfuðið var eins og gróið fast við koddann. »Hvar er afi?« hugsaði Semjan og litaðist um eftir honum. En hann sá hvorki afa eða skóginn eða póstveginn með djúpu hjólförunum. Pá varð hann sárhryggur út af því, að gamli föru- nauturinn hans hafði látið hann liggja svona eftir og tárin runnu niður eftir fölu, mögru kinnunum. VII. Nokkru seinna stóð Semjan við gluggann og horfði út á mannauða götuna, þar sem vindurinn feykti visnum blöðum í vatnspyttina og Ijet þau sigla, Hann var í gráum sjúkra- hússfötum og enn þá fölur og máttlftill eftir lungnabólguna. Bak við hann stóð einn eftir- litsmannanna á sjúkrahúsinu, aldraður uppgjafa- undirforingi, og gægðist einnig þegjandi út á götuna, eins og þar væri eitthvað skemtilegt að sjá. — Hann hafði þegar oft sagt Semjan, að gamall maður, illa klæddur, hefði komið með hann í fanginu til sjúkrahússins. En í ganginum höfðu þeit mætt lögreglustjóranum, sem var á eftirlitsferð. Lögreglustjórinn leit framan í gamla manninn. »Nei, sjáum til, góð- an daginn! Við mætumst þá hjerna! Jeg hjelt annars að þú værir vel geymdur í Krasnojarsk!* Gamli maðurinn var nærri hniginn niður. »Nú,« hjelt lögreglustjórinn áfram, »svo þú ert kom- inn á ferðalag aftur!« — Hann var strax grip- inn þarna. Þetta er í þriója skiftið, sem hann hefir strokið; nú strýkur hanu ekki framar. í hvert skifti, sem Semjan ias kvöldbænina sína, bætti hann við: »Drottinn, frelsaðu afa frá lögreglustjóramini!« »í dag verða fangarnir sendir af stað hjeð- an,« sagði hermaðurinn. »Gættu að! Nú fara þeir bráðum að koma! — Parna lcoma þeir!« Semjan hlustaði; uiidarlegt, dimt hljóð barst til eyrna hans. Svo kom hópur hermanna í háum stígvjelum og með byssur um öxl. Rjett á eftir þeim gengu um tuttugu inenn í gráum kuflum, með gráar, kringlóttar flókahúfur á höfðum og sefskó á fótum. Fjötrarnir hringl- uðu um úlnliði þeirra og slógust um öklana. Beggja megin við þá og á eftir þeim gengu hermenn; allir báru þeir sig kuldalega. Semjan fann hjartað slá hægra og hægra í brjósti sjer meðan haun rreð andlitið við rúð- una slarði inn í þennan gráklædda hóp, til þess að reyna að sj/i eitt kunnugt andlit. Alt í einu rak hann upp hljóð, eða öllu heldur örvæntingaróp, og fór að berja á rúðuna með hnúunum. »Afi, afi, afi!« Hann hafði komið auga á gainla vininn sinn meðal fanganna; hann gekk höktandi í fjötriitium rjett fyrir ut- an gluggann. »Afi, afi!« hrópaði Semjan; hann gleymdi sjálfum sjer fyrir ótta og gleði. Margir litu upp, er þeir heyrðu dumpið í rúð- una, gamli maðurinn Hka. Semjan leit inn í gráu, döpru augun hans og las ástúðina út úr þeirn, er hann drap raunalega höfði til hans að skilnaði. Tárin flóðu niður andlit drengsins veika og hjartað barðist svo ótt, að það var eins og það ætlaði að springa — en fangarnir voru þegar horfnir fyrir strætishornið. Semjan hjelt samt áfram að berja á rúðuna og hrópa: »Afi!« En eftirlitsmaðurinn í stofunni sagði önuglega: »Af hverju ertu að öskra? Hættu þessu góli! Pú verður víst bráðlega sendur heim á sveit- ina þína, því þú ert ekki annað en barn og lrefir ekkert að gera hjer, þegar þú á annað borð ert orðinn frískur. Pú. verður bara send- ur heim — skilurðu það? Hættu svo að grenja!« En drengurinn grjet samt, þrýsti andlitinu að rúðunni og reyndi að sjá íyrir hornið, þang- að, sem vinurinn hans tryggi og lífgjafinn, ókunni maðurinn, drógst þögull áfram í fjötr- um sínum. Þorst. M. G. Hörgdal, þýddi. SKR/TLUR. íri mætti lögregluþjóni á götu, seni veifaði bar- efli í hendi sjer. »Hvað er klukkan?* spurði Irinn. Lögregluþjónninn lemur bareflinu í höfuð honum og segir: »Sló eitt rjett í þessu.« »Ó, guð, jeg þakka þjer, að jeg kom ekki einni stundu fyr,* varð íranum að orði. Prestur einn átti dóttur, sem var fremur gefin fyrir að vera úti seint á kveldin og skelti skolleyr- unum við hinum kristilegu áminningum föður síns. Eitt sinn sem oftar kom hún heiin nær miðnætti og fann húsið lokað, en komst þó inn um glugga og til herbergis síns. Morguninn eftir, þegar prest- ur situr að morgunverði, kemur dóttir hans inn í borðsíofuna, en um leið og prestur sjer hana, hróp; ar hann í kennimannstón: »Par ertu þá komin, þu lastanna og djöfulsins barn!« ... - »Qóðan daginn, faðir minn!« svaraði dóttirin i bljúgum undirgefnisróm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.