Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Síða 67

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Síða 67
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 63 »Hr. verksmiðjueigandi,* mælti Gerða og Ieit til hans, eigi biðjandi, heldur föstu augna- ráði. >Pjer getið eigi ætlað að knýja mig til að heitast yður með því að hóta föður mín- um . , »Hvað ætti að híndra mig í að gera það?« »Meðvitundin um, að þjer gerðuð yður þá sekan í glæp.« »Jeg bið yður, Gerða, að taka vel eftir orð- um mínum: Jeg get verið góðlyndur, meira að segja göfuglyndur, en eigi þá er hamingja mín er í veði, en hún og þjer eruð eitt. Ef þjer hikið við að verða eiginkona mín, þá get jeg hvorki nje vil fyrirgefa það og þjer verðið sjálf að sæta afdrifunum.* »Jeg vildi óska,« mælti Gerða og stóð á fætur, »að jeg gæti neytt mig til að verða kona yðar, en jeg get það ekki, og í þeirri meðvitund að jeg breyti rjettilega í því að segja yður það, fel jeg mig gúði á hendur. Hinn ógæfusami faðir minn er eigi í Svíþjóð; hann á að dæmast eftir sænskum lögum fyrir glæpi sína; en nú er hann í Englandi og heitir öðru nafni og lögin ná honum því eigi. Að hann eigi konu í Svíþjóð og hafi kvongast í Vestur-Indlandi er að vísu satt, en það verður eigi sannað, því að mamma neytir eigi rjettar síns. Hún ræður eins miklu þar um eins og þjer. Jeg hefi komist að raun um, að þjer getið eigi refsað föður mínum fyrir glæpi hans °g jeg, dóttir hans, get eigi lagt það, sem þjer heimtið, í sölurnar fyrir hann. Ef hann hefði verið •heiðvirður og óhamingjusamur maður hefði feg gert það.« Strömberg hafði treyst á það, hvað Gerða var ung og óreynd. Hann hafði haldið, að auðvelt væri að hræða hana til að Iáta undan. Nú sá hann, að hún skildi fullkomlega aðstöðu þeirra beggja og jafnframt, hve Iflils hann mátti sín í raun og veru. »Er þetta fastur ásetningur yðar?« spurði Strömberg. »Já.« »Ungfrú Ahrnell, þá verður ófriður milli okkar. Við sjáum til hvort ber sigur úr být- um. Minnist þess, að jeg hefi varað yður við þeim vopnum, sem jeg beiti.« »Hr. Strömberg, þá eir maður berst fyrir röngum málstað og beitir óheiðarlegum vopn- um, getur maður eigi vænst eftir sigri. Jeg er reiðubúin til að mæta árásum yðar í þeirri öruggu vissu, að guð muni vernda mig.« »Við sjáum hvað setur. Jeg verð nú að fara frá yður, en jeg vona, að þjer hafnið eigi að borða miðdegisverð með Elisu og veita vesl- ings barninu, sem ann yður, þá gleði, að njóta samvista yðar í dag. Á morgun fer hún að heiman. Pjer berið að sjálfsögðu engan kala til hennar, þótt faðir hennar sje óvinur yðar.« »Jeg er eigi óvinur neins,« mælti Gerða í blíðum róm, »og mjer mun alt af þykja vænt um Elísu litlu.« Strömberg horfði lengi á Gerðu og tautaði fyrir munni sjer: »Ókkur hefði öllum verið það heilladrýgra, að þú hefðir eigi verið svona þrálynd.« Hann gekk burtu hröðum skrefum og Gerða fleygði sjer niður á stólinn og hvíslaði: »Guð minn góður! Pað var þá meira en slæmur grunur, að pabbi hefði framið morð.« Að stundarkorni liðnu kom Elísa litla hlaup- andi og kastaði sjer um hálsinn á Gerðu. Pá er Gerða b3uð mömmu sinni góðan dag morguninn eítir, var hún alt önnur en áður. Angurblíðan og hrygðin var horfin úr svip hennar, en festa og ró komin í staðinn, eins og hún hefði hrundið á braut öllum virkileik og ásett sjer að mæta því, sem að höndum bæri með þreki og hugrekki og láta eigi and- streymið buga sig. »Pú eit svo ánægjuleg á svip, barnið mitt,« sagði móðir hennar og klappaði á vanga henn- ar. »Pað hressir mig að horfa á þig og sjá eigi þöglu hrygðina í augum þínum eins og undanfarið.* »Pakka þjer fyrit þessi orð, elsku mamma. Jeg skal framvegis reyna að verða eigi eins döpur í bragði,« svaraði Gerða. »Mjer fer
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.