Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.11.2013, Síða 38

Fréttatíminn - 29.11.2013, Síða 38
É g gifti mig 16 ára. Í araba-löndunum eru stelpur yfir-leitt giftar á aldrinum 16-22 ára. Á þeim aldri eru þær eftirsóttar. Þá eru þær kannski bara búnar að læra að lesa og skrifa en eru ekki farnar að hugsa sjálfstætt og það finnst karlmönnum eftirsóknar- vert. Vel menntuð kona er ógn. Karl- menn forðast konur sem vita meira en þeir. Það er ekki bara þannig í arabaheiminum,“ segir Amal Tamimi. Hún er fædd og uppalin í Jerúsalem í Palestínu en flúði heimilisofbeldi eiginmannsins árið 1995 og fór með börnin þeirra fimm til Íslands. Nafn Amal merkir Von og það er einnig titill ævisögu hennar sem Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður ritar og er nýkomin út. Við mælum okkur mót á Íslensku kaffistofunni og Amal er að borða ís- lenska kjötsúpu þegar ég mæti. Hún segist vera mjög hrifin af henni og að þegar hún bjó í Palestínu hafi hún líka oft borðað matarmikla kjötsúpu með lambi. Það er kalt þennan dag og það er einmitt á slíkum dögum sem henni finnst íslenska kjötsúpan best. Lítil hrædd stelpa í fangelsi Amal hafði marga fjöruna sopið í Palestínu áður en hún kom til Íslands. Hún var 7 ára þegar sex daga stríðið stóð yfir í júní 1967 og Ísrael tók yfir austur-Jerúsalem og Vesturbakkann en stríðið var aðeins hluti af áralöng- um deilum Ísraela og araba allt frá stofnun Ísraelsríkis árið 1948. Aðeins 13 ára gömul fór Amal í fangelsi í fyrsta og eina skiptið. „Á okkar svæði var það ekki jafn mikið tiltökumál eins og hér á Íslandi. Í Palestínu eru 13 ára börn handtekin, lamin illilega og drepin. Við ólumst upp við að öll rétt- indi voru tekin frá okkur. Ég tók þátt í mótmælum gegn því að Ísraelsríki væri að taka yfir landið okkar eins og margir krakkar gerðu og ég var handtekin eftir að ég kastaði steinum að hermönnum. Það var erfitt að fara í fangelsi en það var litið á alla sem fóru í fangelsi fyrir mótmæli sem hetjur þannig að ég gat ekki talað um tilfinn- ingar mínar. Ég var bara lítil hrædd stelpa sem var lokuð inni í myrku herbergi í tvær vikur og fékk ekkert að tala við mömmu mína. Um tíma hélt ég meira að segja að hún væri dáin. Vistin í fangelsinu var hræðileg og hafði mikil áhrif á mig. Ég ákvað að ég ætlaði aldrei aftur í fangelsi. Frekar vildi ég vera skotin.“ Brátt kom að þeim tíma að jafnöldr- ur Amal fóru að trúlofa sig. „Þegar stelpa verður ung kona, fer að fá brjóst og byrjar á túr, þá fer fólk að spyrja um hana. Foreldrar sem eiga kannski 25 ára ólofaðan son eru að leita að brúði handa honum og spyrja þá for- eldra stúlkunnar hvort þeir séu til í að láta hana giftast syni sínum. Þetta er allt samkomulag og þannig frétti ég af minni trúlofun. 16 ára gömul fór ég í skólann með trúlofunarhring og það þótti mjög flott. Það þýddi að einhver hafði verið að spyrja um mig. Í þessu samfélagi skiptir ekki máli hvað þú gerir eða hvað þú kannt, aðalmálið er að vera gift kona og eignast börn. Það er markmiðið og öllu er fórnað til þess. Við sem ólumst upp við þetta vissum bara ekki betur.“ Andlega ofbeldið verst Hjónaband Amal og Muhammad var afar stormasamt. Þau voru aðeins rétt trúlofuð þegar hann byrjaði að niður- lægja hana og skipa henni hvernig hún ætti að haga sér. Amal sagði móður sinni frá hegðun hans en hún þvertók fyrir að Amal gæti hætt við brúðkaupið. Það myndi frekar skaða orðspor hennar að slíta trúlofun enda þvert á allar hefðir. Saman eignuðust þau fimm börn. Fyrst var áherslan á að hún eignaðist son, því þeir einir voru álitnir gleðigjafar fyrir fjöl- skylduna, og síðan að hún eignaðist annan son því hefð samkvæmt þurftu drengir að eiga minnst einn bróður. Fjórða barnið var sonur og það fimmta líka. Kannski sem betur fer því annars hefði hún þurft að eignast enn eitt barnið. „Þetta var erfitt hjóna- band og ég var aldrei ham- ingjusöm. Mér fannst and- lega ofbeldið verst. Með árunum fannst mér bar- smíðarnar einhvern veginn verða ásættanlegri,“ segir hún. Lögum samkvæmt gat Amal ekki skilið við eigin- manninn án þess að missa forræði yfir börnunum. Í nokkurn tíma lagði hún því um á ráðin að flýja með börnin fimm til Íslands þar sem bróðir hennar bjó, Sal- mann Tamimi. Hún flutti til Íslands árið 1995 með þau Falasteen, Fida, Wala, Majd og Ahd. „Það var mjög erfitt að koma inn í nýtt samfélag, einstæð með fimm börn, og kunna ekki tungumálið. Bróðir minn hjálpaði mér að fá atvinnuleyfi og dvalarleyfi. Ég bjó heima hjá honum fyrstu þrjá mánuðina, þá komst ég inn í félags- lega kerfið og fór að leigja íbúð. Ég var í raun heppin því eins og staðan er í dag myndi ég ekki geta komið inn í landið og fengið félagslega aðstoð strax eftir þrjá mánuði. Ég fékk heim- ilislækni, börnin komust inn í skóla og leikskóla. Þetta var algjör lúxus fannst mér að þurfa ekki að hugsa um neitt nema að vinna.“ Og Amal vann XE IN N IX 1 3 11 0 02 Kíktu við að Fosshálsi 1 í Reykjavík og skoðaðu fallega og skemmtilega öðruvísi gjafavöru frá BoConcept. Falleg gjafavara frá BoConcept! Púði „turn me around“ Púði „Sari“ Bollar „Collectors“ Vasi „Owl purple“ verð kr. 10.790,- stk. verð kr. 8.990,- stk. verð kr. 9.690,- 6 í pakka verð kr. 10.190,- stk. Púði „Six assortments“ Teppi „Sari vintage“ Kertastjakar „Japanese Dolls“ Veggklukka „Mega numbers“ verð kr. 9.190,- stk. verð kr. 18.390,- stk. verð kr. 2.995,- stk. verð kr. 9.490,- stk. Glíman við bróður minn Amal Tamimi var aðeins 13 ára þegar hún var sett í fangelsi í Palestínu fyrir mótmæli. Hún giftist ung og flúði síðar ofbeldisfullan eiginmann með fimm börn og settist að á Ís- landi. Hún naut í fyrstu aðstoðar bróður síns, Salmann Tamimi, en hann sneri við henni bakinu þegar hún hóf sambúð með kristnum manni því það samræmist ekki hefðum mús- lima. Í 18 ár hefur samband systkinanna verið sama og ekkert, en Amal er stolt af því að hafa verið dætrum sínum góð fyrirmynd. Ég vildi ekki að þær yrðu tilneyddar til að giftast múslima. Amal Tamimi ögraði hefðum múslima þegar hún hóf sambúð með kristnum manni. Hún undraðist viðbrögð fjölskyldu sinnar sem afneitaði henni enda hafði fjölskyldan aldrei verið mjög trúuð. Ljósmynd/Hari Framhald á næstu opnu 38 viðtal Helgin 29. nóvember-1. desember 2013
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.