Fréttatíminn - 20.12.2013, Blaðsíða 71
Axis óskar
viðskiptavinum sínum
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og gæfu á nýju ári.
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Fax 535 4301 • Netfang axis@axis.is • Heimasíða www.axis.is
Ný bók eftir drottningu spennusagnanna Mary Higgins Clark.
Dr. Lyons er myrtur og grunur fellur á ekkju hans.
Dóttur þeirra bíður hið vandasama verk að hreinsa
nafn móður sinnar og finna morðingja föður síns.
Mary Higgins Clark er enginn nýliði í ritun glæpasagna
en eftir hana liggja yfir 30 spennusögur sem selst hafa
í milljónum eintaka um allan heim.
Drottning spennusögunnar
Nú einnig sem kilja
Bert er bestur
Bert er ástfanginn eina ferðina enn.
Til að fanga athygli stelpunnar skráir hann sig
í leiklistarhóp með kostulegum afleiðingum.
Prakkarinn Bert er samur við sig í þessari nýju bók.
Hvolpurinn Depill
Depill er týndur og
mamma hans, Doppa
er að leita að honum.
Börnin hjálpa Doppu
að leita með því að
lyfta flipum og sjá
hvað leynist undir
þeim.
Fróðleiksbók handa börnum
Vísindi og fræði kynnt á
auðskilinn og skemmtilegan
hátt. Nákvæmar myndir
sýna efnið í smáatriðum
og undir flipum leynast
spennandi þekkingarmolar.
Aðgengilegur texti sem
börnin lesa sjálf eða
er lesinn fyrir þau.
bokaforlagidbifrost@simnet.is
Sími 511 2400
Smiler getur breytt öllu
Í þessari bók lærir þú um mátt þess að brosa
og hve megnug við erum að skapa.
Sannar sögur höfundar krydda á
skemmtilegan hátt mátt þessarar speki.
„Hér er dásamleg staðfesting á því að hægt er
að finna – og svo sannarlega skapa – kærleika
og gleði í lífinu öllu, með verkfæri sem þig mun
undra hversu auðvelt er að nota.
Þetta er bók sem getur breytt lífi allra,
alls staðar.“
Neale Donald Walsch, höfundur
metsölubókanna Samræður við Guð.
Bókin er bæði á íslensku og ensku.
Áttaðu þig á tilgangi lífs þíns
Loksins fáanleg á ný, nú í kilju
eftir höfund metsölubókarinnar
Mátturinn í núinu. Vegvísir að
hamingju og heilbrigði.
„Megintilgangur þessarar bókar er ekki að
bæta nýrri vitneskju eða skoðunum í huga
þinn eða reyna að sannfæra þig um eitt eða
neitt, heldur stuðla að vitundarbreytingu,
það er að segja vakningu.
Þessi bók fjallar um þig ...“
anddyrinu hafi þvælst fyrir fótum
hans bréf sem greinilega hafi verið
hent inn án þess að nokkur gerði
vart við sig. Í bréfinu tilkynni Stefán
Benediktsson, formaður kjörstjórn-
ar, að berist ekki persónulegar stað-
festingar allra nýrra félaga í Rósinni
fyrir klukkan 13 í dag verði þeir
teknir út af kjörskrá – og fá ekki að
taka þátt í prófkjörinu.
„Ég veit ekki hvað er að þessu
fólki,“ segir Birgir. „Hvernig halda
menn að það sé hægt að kjósa án
þess að sanna hver viðkomandi er?“
Hann er fokreiður og fær Sigurð G.
Guðjónsson til að útbúa skriflega
kæru til úrskurðarnefndar flokksins
og krefjast þess að ákvörðun kjör-
stjórnarinnar verði felld úr gildi.
Hæstaréttarlögmaðurinn er snöggur
að semja greinargóða kæru og koma
henni í réttar hendur.
Eftirgrennslan leiðir í ljós að
ákvörðunin var tekin í ágreiningi
innan kjörstjórnarinnar. Það er ekki
upplýst hvaða meðframbjóðandi
minn kærði – og ég spyr aldrei.
Ég á stutt símtal við lögmanninn
seint um kvöldið. Sigurður G. segir
að þetta sé hrein lögleysa. Í fyrsta
lagi sé framlagning lista Rósarinnar
í samræmi við flokkslögin. Í öðru
lagi hafi listunum verið skilað inn á
skrifstofu flokksins fyrir auglýstan
frest og starfsmenn hennar hafi
engar athugasemdir gert við þá.
í þriðja lagi hafi á annað hundrað
manns úr Kraganum gengið í Rósina
með nákvæmlega sama hætti og
fengið óáreitt að taka þátt í prófkjöri
flokksins í því kjördæmi. Í fjórða lagi
sé búið að gefa út kjörskrá sem kjör-
stjórnin hafi samþykkt og þess séu
engin dæmi í heiminum að menn
séu sviptir kosningarétti eftir að vera
samþykktir inn á kjörskrá. Í fimmta
lagi hafi hluti þessara umdeildu
félaga nú þegar tekið þátt í prófkjör-
inu með því að greiða atkvæði utan
kjörstaðar á skrifstofu flokksins á
Hallveigarstíg. Með jafnræðisrökum
sé því ekki hægt að láta ákvörðun
kjörstjórnarinnar standa. Í sjötta lagi
séu einungis veittar fimm „virkar“
klukkustundir til að ná persónulegri
staðfestingu hundraða manna. Það
sé svo augljóslega ósanngjarnt að
útilokað sé að ákvörðunin standist.
Þetta eru pottþétt rök. En atlaga er
atlaga og þá skirrast menn einskis.
Föstudagur 16. nóvember
Þegar ég kem á ógnarlangan ríkis-
stjórnarfund er allt orðið vitlaust í
fjölmiðlum. Inn á fundinn berast mér
fregnir um að úrskurðarnefnd hafi
ekki setið lengi yfir kæru Sigurðar
G. Guðjónssonar f.h. Rósarinnar.
Henni er hafnað. Fyrir utan þá 350
sem gengu í flokkinn á vegum minn-
ar sveitar kemur í ljós að heildar-
fjöldi þeirra sem voru á listum nýrra
félaga Rósarinnar voru um 700.
Þeim er öllum hent út úr flokknum.
Framhald á næstu opnu