Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.12.2013, Blaðsíða 112

Fréttatíminn - 20.12.2013, Blaðsíða 112
 Þ að þarf ekki að kynna Stefán Mána fyrir íslenskum lesend-um. Enda meistari íslensku undirheimanna – hvað bókmenntirnar áhrærir í það minnsta. Grimmd er hans nýjasta bók og þar sækir hann ekki vatn- ið yfir lækinn. Nóg af glæpamönnum, aðeins af löggum og fjölskyldudrama af bestu sort. Sagan verpist í kringum smákrimm- ann Smára Clover sem reynir, einn síns liðs, að eiga stór lokaviðskipti við aðal glæpakíkurnar á Íslandi. Það fer að sjálf- sögðu allt úr böndunum hjá okkar manni sem reynir eftir bestu getu að krafsa sig úr vandræðunum. Önnur saga flétt- ast svo inn í ævintýri smáglæpamanns- ins, heilmikið fjölskyldudrama þar sem meðal annars ungbarni er rænt. Betra að fara ekki nánar út í það plott hér til að skemma nú ekki neitt. Sagan flakkar líka aðeins um í tíma. En eins og gerist oft með svoleiðis er gamla sagan áhugaverðust. Stefáni tekst, með þessu tímaflakki og af stakri list, að manngera forhertan glæponinn. Mig langaði að fá að vita meira. Sérstaklega hvernig hann gerði æskuna upp. Ég ímynda mér í það minnsta að ekki allir hafi komið heilir út úr því blóðuga upp- gjöri. En hvað um það. Ekkert var um það í þessari bók. Við eigum það kannski inni. Góðkunningjar úr sögum Stefáns eru nokkrir mættir til leiks með rannsóknarlögg- una Hörð Geirs- son fremstan í flokki. Hann spilar reyndar ekki nema aukahlutverk hér enda þreyttur og pirraður nýbak- aður faðir með heiminn á herð- unum. Stefán segir söguna skáld- verk byggða á raunverulegum atburðum. Ætli flestir sem lesa séu ekki fegnir því að einhverjir aðrir stóðu í stappinu sem þar er lýst. Þannig er það að minnsta kosti með undirrit- aðan sem las bókina í hlýrri borgaralegri íbúð í Hlíð- unum. Þessi óraunveruleiki, sem sjálfsagt er þó raunveru- leiki hjá mörgum, er enda það sem gerir bækur Stefáns Mána að því sem þær eru. Og gerir um leið borgurum eins og mér með sínar skyldur og skatta kleift að kúpla sig út án þess að brjóta landslög eða horfa á ameríska hasarmynd. Aðall bóka Stefáns hefur jafnan verið hvernig hann setur bækurnar upp eins og kvikmynd. Næstum eins og leikstjóri. En með þessari bók sem er feikilöng, rétt um 450 blaðsíður, missir okkar maður sig aðeins. Þetta er svona „directors cut“ bók. Það hefði verið hægt að stytta tals- vert án þess að missa niður taktinn. Persónulýsingarnar eru til dæmis full langar og eru líka orðnar dálítið keim- líkar þeim sem hafa lesið eina eða tvær bækur eftir Stefán. Þær eru til dæmis orðnar nokkrar persónurnar sem varla fara úr þumlungsþykkum leðurfrökkum, klæðast gæruvestum eða Adidas íþrótta- göllum. Þung brjóst vilja líka gjarna hanga utan á kvenpeningnum. Það er þó mjög skemmtilegt hvernig höfundi tekst að setja senuna með tónlist. Já, tónlist í bókum er greinilega eitthvað sem er til. Alla vega er ég með eitt lagið límt á heilabörkinn. Búm, búm mega, mega... Takk Stefán Máni. Held barasta að Jakob Frímann og þeir þarna hjá STEF geti mögulega sent honum bakreikning. Þrátt fyrir lengdina og keimlíkar pers- ónur er bókin og sagan sem hún segir að vanda fín lesning. Því eftir aðeins brös- óttan kafla rétt fyrir miðja bók hélt hún mér pikkföstum í sófanum. Haraldur Jónasson 112 bækur Helgin 20.-22. desember 2013  Bókadómur: Leiðin tiL sigurs Ólæsinginn sem kunni að reikna, eftir Jonas Jonasson, trónir á toppi Bóksölulistans yfir þýdd skáldverk. Innbundin er hún á toppnum en í kilju í því þriðja. ÁBerandi óLæsingi  ritdómur grimmd Halldór Svavarsson er elsti unglingabókahöfundurinn sem tekur þátt í bóka- flóðinu í ár. Hann er á áttræðisaldri en sendi nýverið frá sér unglingaspennu- söguna Lífsháski. Lífsháski segir af þremur systkinum sem fara í dálitla sjóferð sér til skemmt- unar og sögusviðið er norðurströnd Íslands í svartasta skammdeginu. Bilaður viti, hafrannsóknarskip sem fær á sig brotsjó, hafís, hættuleg sker og endalaus vetrarnóttin gera ferðina að háskalegu ævintýri. Bókin er sögð vera fyrir hugrakka unglinga, skrifuð af höfundi sem þekkir af eigin reynslu hversu óvægin og viðsjárverð Norðurhöf geta verið. Halldór er alinn upp í sjávarþorpi þar sem brimsorfnir sjávarhamrar voru leikvöllurinn. Þráður sögunnar er spunninn úr hans eigin reynslu af sjómennsku og mannraunum. Halldór er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum á eftirstríðsárunum. Rétt eins og aðrir ungir menn fór hann til sjós og stofnaði fjölskyldu. Nótt eina þurfti hann að flýja ógnarkraft náttúru- aflanna þegar eldur gaus úr iðrum jarðar, fjölskyldan missti heimili sitt og varð að byrja upp á nýtt á nýjum stað. Hann hefur búið í Hafnarfirði um áratugaskeið, en tengslin við æskuhagana hafa aldrei rofnað. Hann hefur alla tíð skrifað og sagt sögur en aldrei fyrr gefið út skáldsögu. Á áttræðisaldri með unglingabók María Krista Hreiðarsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermanns- dóttir eru tilnefndar til Gourmand-verðlaunanna. María Krista er tilnefnd fyrir bókina Brauð og eftirréttir Kristu og Eva Laufey sem besti matarbloggarinn 2013. Í bók sinni tínir Krista til auðvelda, fljótlega eftirrétti; kökur, konfekt og brauðrétti fyrir öll tækifæri og þykir sýna og sanna að sætindi og eftirréttir geta verið ljúffengir og spennandi þótt í þá vanti allan sykur, ger og hveiti. Eva Laufey hefur haldið úti afar vinsælu matarbloggi www.evalaufeykjaran.com frá síðari hluta ársins 2010. Nýverið kom út bók hennar Matargleði Evu með rúmlega 80 gómsætum uppskriftum. Gourmand verðlaunin eru meðal þeirra virtustu í heiminum á sviði matar- og vín- bóka. Bækur frá yfir 150 löndum eru jafnan sendar í keppnina þannig að samkeppnin sem mætir íslensku matgæðingunum er hörð. Keppnin fer þannig fram að bækur eru tilnefndar til hinna ýmsu flokka en jafnframt er valinn sigurvegari hvers lands fyrir sig sem keppir um aðalverðlaunin. Verðlaunin verða afhent í Peking í maí á næsta ári. Tilnefndar til Gourmand Ég hef alltaf furðað mig á því hversu mikill fjöldi sjálfshjálpar- bóka er gefinn út um víða veröld og aðallega fundið í þessari dellu tilefni til þess að gera grín að öllum þeim vitleysingum sem ríghalda í einhverjar skruddur eftir misklára spekinga til þess að reyna að koma skikki á sjálfa sig og líf sitt. Þar sem ég hef, með reglulegu millibili, af einurð og festu klúðrað lífi mínu ítrekað með dyggri að- stoð áfengis hefur fólk stundum freistast til þess að gauka að mér einhverjum svona bókum. Allar hafa þær endað ólesnar í Góða hirðinum. Eftir að hafa lesið Leiðina til sigurs, eftir Gulla stjörnu, í hálfgerðu bríaríi neyðist ég nú til þess að draga aðeins úr fordómum mínum gagnvart sjálfs- hjálparbókum. Gulli kom mér skemmtilega á óvart og ég fæ ekki betur séð en skýrar og kjarngóðar leiðbeiningar hans um hvernig maður geti byggt sig upp, andlega og líkam- lega, séu líklegar til þess að skila árangri. Gulli gefur mikið af sér í bókinni og er persónu- legur, eins og hans er von og vísa, þegar hann segir frá eigin ósigrum og sigrum í lífinu. Vegurinn til vítis er varðaður góðum ásetningi og þá fyrst og fremst þegar heill hugur fylgir ekki máli. Gulli bendir þannig réttilega á að það stoðar lítt að leyfa sér að dreyma og gera sér vonir ef efinn og óttinn fylgja í kjöl- farið og skjóta væntingarnar niður áður en á reynir. Auðvitað er þetta allt sáraeinfalt og það er jafn auðvelt að klúðra málum og ná árangri. Allt veltur þetta á þeim grunni sem byggt er á og Gulli gefur skýrar leiðbeining- ar á mannamáli um hvernig hægt er að reisa sig upp og ná tökum á tilverunni með því að huga fyrst að undirstöðunni. Þetta kostar vissu- lega smá tiltekt, enda mikilvægt að kasta af sér þungum fortíðarfar- angri svo hægt sé að skoppa leikandi létt út í lífið. Leiðin til sigurs er aðgengileg og auðlesin bók sem ég held svei mér þá að geti í raun og veru gagnast í eilífri glímu manneskjunnar við sjálfa sig. -Þórarinn Þórarinsson Beitt vopn í innri baráttu  grimmd Stefán Máni JPV 452 s, 2013  Leiðin til sigurs Gunnlaugur Guðmundsson Bókafélagið 208 s, 2013 Krimmi kemst í hann krappan Stefáni tekst, með þessu tímaflakki og af stakri list, að manngera forhertan glæponinn. Mig langaði að fá að vita meira. Sérstaklega hvernig hann gerði æsk- una upp. Ég ímynda mér í það minnsta að ekki allir hafi komið heilir út úr því blóðuga uppgjöri. 17.600 kr. 16.500 kr. stgr. Gunnlaugur Guðmundsson, Gulli stjarna, er þekktastur sem stjörnuspekingur en í Leiðinni til sigurs er hann með báða fætur á jörðinni og gefur einföld og góð ráð sem ættu að virka. Mynd/Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.