Fréttatíminn - 20.12.2013, Blaðsíða 22
Jólin eru ekki í matnum eða skreytingunum heldur innra með sjálfum þér
Jólin í þér
É g gleymdi því í gærmorgun að það var dótadagur á leikskól-anum. Dóttir mín var vitanlega
mjög leið þegar við mættum og sáum
bara hina krakkana með dót. Ég hefði
orðið of sein í vinnuna ef ég hefði farið
heim að sækja dót og ákvað því að biðja
Lovísu mína að doka við á meðan ég
athugaði hvað leyndist í bíln-
um því stundum verða þar
eftir bækur eða leikföng. Í þetta
skiptið var lítið að hafa, litla
gula mús sem hefur hangið
á sætinu fyrir framan hana
frá því hún var ungbarn, og í
skottinu fann ég síðan forláta
frisbídisk sem ég fékk á afmæli
Atlantsolíu hér um árið og var
kirfilega merktur fyrirtækinu.
Mér fannst ég hafa heldur lítið
upp úr krafsinu en ákvað að at-
huga hvernig henni myndi lítast
á þessa hluti. Annars myndi ég
bara fara heim að sækja dót. Það gerðist
nefnilega einu sinni áður að ég gleymdi
dótadeginum en komst ekki að því fyrr
en í lok dags og Lovísa hafði þá verið
miður sín allan daginn. Nei, það skyldi
ekki gerast aftur. Full efasemda gekk
ég inn með gulu músina í annarri hendi
og frisbídiskinn í hinni, en þegar hún
sá mig fór hún bókstaflega að ljóma. Á
sama tíma kom einn pabbinn inn með
dóttur sína og dúkkuvagn og dúkku
en Lovísa lét það lítið á sig fá. Þar sem
músin og frisbídiskurinn áttu lítið sam-
eiginlegt ákvað ég að biðja hana að velja
annað hvort og hún hreinlega titraði
af spenningi meðan hún skælbrosandi
reyndi að ákveða hvort hún vildi, og
valdi loks hvíta fisbídiskinn með vöru-
merki Atlantsolíu, stóru A-i og O-i. Já, og
þetta var sérstaklega flott því Anya, ein
besta vinkona Lovísu, átti þarna staf.
Stundum vildi ég hreinlega óska að
það væri jafn auðvelt að gleðja mig og
rétt fjögurra ára barn, og að ég léti ekki
tegund eða stærð efnislegra hluta trufla
mitt daglega líf. Þessa dagana snýst allt
um að kaupa ákveðinn mat og nógu fínar
gjafir og skreyta á viðurkenndan hátt því
annars er ekki hægt að halda jól. Já, þá
koma jólin barasta ekki.
Fyrr í desember birtist viðtal í Frétta-
tímanum sem ég tók við söngkonuna
Sigríði Thorlacius sem sagðist ekki
binda jólin við ákveðna hluti. Eftir að
fyrsti í aðventu var liðinn gerði hún sér
grein fyrir að hún var ekki með neinn
aðventukrans og það truflaði hana
lítið en hún ákvað samt að fá sér lítinn
krans, bara svona af því það er það sem
fólk gerir á aðventunni. Ég tengdi mjög
sterkt við hvernig hún finnur jólin í sín-
um eigin hefðum en ekki þeim utanað-
komandi, hefðum sem aðrir hafa búið til
fyrir okkur. Hún sagði líka frá því þegar
hún eyddi jólunum með vinkonu sinni í
París þegar þær voru nýskriðnar upp úr
tvítugu og voru þær sannfærðar um að
jólin myndu alls ekki koma því aðstæð-
urnar voru svo óhefðbundnar. En jólin
komu nú samt og þau gera það alltaf.
Þetta er ekki spurning um að borða
hamborgarhrygg með sparihnífapörum,
klæðast glænýjum tískufötum og gefa
– og fá – dýrustu gjafirnar. Það eru
ekki jólin. Jólin eru hátíð kærleikans
og kærleikurinn spyr hvorki um titil
né efnahag. Jólin eru hátíð þar sem við
fáum tækifæri til að setjast niður, sátt
við okkar, og gleðjast í núinu yfir því
sem við eigum, því það er sama hversu
lítið þú heldur að þú eigir þá veit ég að
þú finnur fjársjóðinn ef þú bara leitar vel
innra með þér.
Stundum vildi ég hreinlega óska að það væri jafn
auðvelt að gleðja mig og rétt fjögurra ára barn.
Nilfisk er
hrein snilld
fyrir jólin!
GÆÐI OG GÓÐ ÞJÓNUSTA Í MEIRA EN 70 ÁR!
FÖNIX Raftækjaverslun • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • fonix@fonix.is • www.fonix.is
Um áratugaskeið hafa Nilfisk ryksugurnar
sannað yfirburði sína sem gæðamerki sem
uppfyllir ströngustu kröfur
Power Eco
Almennt verð: 56.800
Verð nú: 39.800
Handy 2 in 1 - 14 v
Almennt verð: 24.800
Verð nú: 19.800
Handy 2 in 1 - 18 v
Almennt verð: 29.800
Verð nú: 23.400
Elite Comfort
Almennt verð: 74.200
Verð nú: 58.800
Coupe Neo
Almennt verð: 26.800
Verð nú: 19.800
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Vikan í tölum
37,8
milljóna hagnaður varð af rekstri veitingastað-
arins Sushisamba í fyrra. Það er viðsnúningur
frá 21,1 milljóna tapi árið áður.
1.000.000.000
króna er knattspyrnumaðurinn
Alfreð Finnbogason í Heerenveen
metinn á. Skoska liðið Celtic er
sagt vera að undirbúa tilboð í
kappann í janúar.
2,2
milljörðum króna
varði Gamma í
kaup á fasteignum
í fyrra. Félagið á,
rekur og leigir út
íbúðir í Reykjavík.
70
milljónir króna
vann atvinnulaus
fjölskyldukona í
lottóinu um síðustu
helgi. Potturinn var
áttfaldur í fyrsta
sinn og skiptu
tveir með sér vinn-
ingnum.
22 viðhorf Helgin 20.-22. desember 2013