Fréttatíminn - 20.12.2013, Blaðsíða 124
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
4
9
3
Kia Sorento LX 4wd
Árg. 2010, ekinn 45 þús km.,
dísil, 164 hö., beinskiptur,
eyðsla 7,8 l/100.*
Verð: 3.890.000 kr.
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2012, ekinn 33 þús. km,
dísil, 136 hö., beinskiptur,
eyðsla 5,7 l/100.*
Verð: 4.690.000 kr.
Kia cee‘d Sportswagon LX 1,6
Árg. 2012, ekinn 35 þús. km,
dísil, 116 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 5,6 l/100.*
Verð: 2.950.000 kr.
Kia cee‘d LX 1,6
Árg. 2012, ekinn 45 þús. km,
dísil, 116 hö., 6 gíra, beinskiptur
eyðsla 4,4 l/100.* Grænn bíll.
Verð: 2.550.000 kr.
Opið virka daga kl. 10-18
* Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
Veldu notaðan Kia
með lengri ábyrgð
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2013, ekinn 31 þús. km,
dísil, 136 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,9 l/100.*
Verð: 5.790.000 kr.
Greiðsla á mánuði
39.900 kr.
M.v.60% innborgun og 84 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 11,94%.
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
Kia Rio LX 1,4
Árg. 2013, ekinn 24 þús. km,
dísil, 90 hö., beinskiptur,
eyðsla 4,1 l/100.* Grænn bíll.
Verð: 2.450.000 kr.
Greiðsla á mánuði
19.900 kr.
M.v.53% innborgun og 84 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 12,53%.
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
Gott
eintak
Í takt við tÍmann Oddur SturluSOn
Ætlar að drekka kokteila
úr kókoshnetum í janúar
Oddur er mikill fagurkeri og
snyrtimenni enda hefur hann
unnið í mörgum tískuvöru-
verslunum í gegnum tíðina.
Nú selur hann bindi, slaufur
og fleira ásamt félaga sínum í
vefversluninni Sons.
Ljósmynd/Hari
Oddur Sturluson er 24 ára fagurkeri sem er annar stofn-
enda vefverslunarinnar Sons sem selur bindi og aðra
fylgihluti fyrir karlmenn. Oddur er að klára nám í mann-
fræði um áramótin og byrjar í kjölfarið í meistaranámi í
stjórnun og stefnumótun. Hann drekkur Konga-kaffi, æfir
víkingaþrek og gengur í handgerðum leðurskóm.
Staðalbúnaður
Ég vil hafa fötin klassísk, einföld og vel gerð. Það er líka lang
hentugast, þá þarf ekki að brjóta heilann of mikið um þetta;
ef það er klassískt og einfalt þá passar það við allt. Uppáhalds
tískuborgin mín er London. Mikið af mínum hugmyndum og
innblæstri koma frá London og Napólí. Það er reyndar
margt flott í boði á Íslandi, það hefur batnað mikið
á síðustu tíu árum. Ég hef ákveðin prinsipp með
skó; ég geng bara í hvítum strigaskóm og ef ég
geng í leðurskóm vil ég að þeir séu handgerðir.
Þá geng ég bara í hvítum eða ljósbláum skyrt-
um. Og ég nota aldrei flipann aftan á bindum
sem ætlast er til að menn stingi stutta end-
anum í gegnum. Það er plebbalegt.
Hugbúnaður
Þegar ég fer út að skemmta mér fer ég
á Kex, Bunk og Kaffibarinn. Ég tek
stundum vaktir á Bunk og kann því að
gera „mean“ kokteila en sjálfur er ég
hrifnastur af bjór. Þá er gott að fara á
Bunk og Kex þar sem er úr einhverju að
velja á krana. Á Reykjavík Roasters fæ
ég frábært kaffi, sérstaklega eina týpu
sem heitir Konga. Ég æfi bæði box og
víkingaþrek í Mjölni. Ég hef rosalega
litla þolinmæði fyrir því að fylgjast með
sjónvarpsþáttum en er að reyna að vinna mig í gegnum Breaking Bad og
fylgist enn með Walking Dead. Síðustu þættirnir sem náðu alveg að grípa
mig voru 24.
Vélbúnaður
Ég er loksins genginn til liðs við Apple-klúbbinn því ég fékk mér
iPhone um daginn. Það er reyndar aðeins of seint, greinilega,
því flestir vinir mínir eru að skipta yfir í Samsung núna. Þessi
iPhone er að einhverju leyti mikið böl því með honum er maður
alltaf í vinnunni, það er reyndar bæði gott og slæmt. Það sem
ég eyði mestum tíma í en ætti ekki að gera er QuizUp. Það er
frábær leikur en alger tímaþjófur. Ég held að ég þurfi að eyða
honum úr símanum.
Aukabúnaður
Ég reyni að borða hollan mat og er nokkuð duglegur við að
elda. Bloggið hennar Evu Laufeyjar Kjaran hefur reynst mér
vel, það er fínt að hafa bara einn góðan stað til að finna upp-
skriftir á. Ef ég kaupi mér mat þá fer ég helst á Gló. Ég bý
niðri í bæ þannig að ég kemst upp með að vera ekki á bíl. Ég
hjóla bara um allt, held mér í góðu formi og sleppi því um leið
að menga. Um jólin fer ég til foreldra minna í Danmörku og
eftir það fer ég til Sri Lanka í mánuð. Systir mín býr þar og
þetta verður hálfgerð útskriftarferð hjá mér. Ég ætla að sóla
mig og drekka kokteil úr kókoshnetu en ætli ég verði svo
ekki bitinn af hræðilegri risastórri eitraðri könguló.
124 dægurmál Helgin 20.-22. desember 2013