Fréttatíminn - 12.10.2012, Side 16
Afsökun vegna tilbúinnar
bólusóttarfréttar
Háskólinn í Reykjavík, þar sem Ari Kristinn
Jónsson rektor er í forsvari, baðst afsökunar á
því að myndband þar sem fullyrt er að bólusótt
arfaraldur herji á heiminn hafi verið sett á netið.
Myndbandið, sem var
skólaverkefni, var sett
á YouTube-rás HR.
Efni þess átti ekki við
nein rök að styðjast
en mörgum var
brugðið. Myndbandið
var fjarlægt.
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn
Ég skammast mín ekkert
Þ egar ég var á öðru ári í bókmennta fræði missti ég trúna á sjálfa mig. Það hafði
smám saman verið að fjara undan
dugnaðarforkinum sem ég var í
grunnskóla, námsmanneskjunni og
afreksíþróttakonunni en ég skrifaði
það allt á ytri aðstæður. Ég fór í þrjá
menntaskóla, ég var svo rótlaus, en
útskrifaðist samt sem áður á
réttum tíma. Ég hafði stefnt
að því frá því að ég var ellefu
ára að verða læknir en daginn
sem ég varð stúdent hætti ég
við. Ég vildi ekki hætta á að
ná ekki inn í fyrstu tilraun.
Og því fór ég í bókmennta-
fræði. Ég hafði alltaf haft mik-
inn áhuga á bókmenntum og
því ákvað ég að læra það frek-
ar en ekkert. Námið kom mér
hins vegar verulega á óvart.
Það var krefjandi á algjörlega
nýjan hátt. Mér hafði þótt
skemmtilegast í raungreinum
til þessa. Stærðfræði, eðlis-
fræði og efnafræði eru svo auðveld því
þar er alltaf bara eitt rétt svar.
Bókmenntafræðin var gjörólík. Ég
þurfti að setja mig í allt aðrar stell-
ingar í námi en áður og fannst það
áskorun. Gagnrýnin hugsun og rök-
studdar vangaveltur komu í veg fyrir
flókna útreikninga með einni réttri
niðurstöðu. Svo ég hélt áfram í bók-
menntafræði.
Á síðari önn á öðru árinu mínu fór
áhuginn að dvína. Ég fór að finna fyrir
kvíða á kvöldin, þegar ég fór að sofa,
yfir því að þurfa að mæta í skólann
næsta dag. Oftast mætti ég ekki en
flest fögin sem ég var í voru þannig að
mætingin skipti engu máli. Ég myndi
bara redda þessu fyrir vorprófin,
það hafði ég nú gert áður enda mikil
skorpumanneskja.
Svo komu vorprófin. Ég hafði gert
mér áætlun um hvernig ég kæmist yfir
allt námsefnið á þeim tveimur vikum
sem voru í prófin. Ef ég yrði dugleg
myndi þetta alveg ganga upp.
Svo byrjaði ég að lesa. Ég man að ég
sat og las mjög áhugaverða bók, gott
ef það var ekki á námskeiði í banda-
rískum samtímabókmenntum. Og ég
las og las og las, síðu eftir síðu. Ég
rankaði reglulega við mér eftir að hafa
lesið fáeinar blaðsíður án þess að hafa
hugmynd um hvað ég var að lesa. Ég
skildi ekki neitt og mundi ekki neitt.
Ég fór að efast um getu mína til þess
að skilja ensku, um getu mína til þess
að túlka bókmenntaverkið, um hæfi-
leika minn til þess að læra.
Ég hélt áfram að reyna en ekkert
gekk. Ég fylltist sífellt meiri ónota-
tilfinningu og vanmætti og flúði inn
í draumalandið, svaf allt að 16 tíma á
sólarhring og fór ekki út úr húsi. Ég
talaði ekki við vini mína né fjölskyldu
og einangraði mig nánast.
Þangað til ég gat ekki meir. Í
örvæntingu minni hringdi ég í fjöl-
skylduvin, sem er félagsráðgjafi, sem
ráðlagði mér að hætta bara að hugsa
um skólann, taka mér frí og reyna að
gera allt sem ég gæti til að láta mér
líða betur. Ég fór til foreldra minna
sem sáu fljótlega að ekki var allt með
felldu hjá frumburðinum. Mamma
pantaði tíma hjá geðlækni og ég fékk
tíma mjög fljótt.
Hann greindi mig með þunglyndi.
Um þessar mundir eru liðin 20 ár
frá því alþjóðlegi geðheilbrigðisdagur-
inn var haldinn í fyrsta sinn. Í ár er
sjónum beint að þunglyndi.
Talið er að um einn af hverjum fimm
Íslendingum þjáist af þunglyndi á ein-
hverjum tíma ævi sinnar. Til allrar
hamingju hefur umræðan um geðsjúk-
dóma opnast á undanförnum árum
þannig að þeir sem glíma við þá þurfa
ekki lengur að lifa í skömm yfir því.
Ég skammast mín ekkert. Ég hef
strítt við þunglyndi og kvíða frá því
að ég var unglingur. Þessi sjúkdómur
mun fylgja mér alla ævi. Ég hef lært
að lifa með honum enda eru mörg ár
síðan hann lagði mig síðast í rúmið.
Ég mun aldrei geta sagst vera
ánægð með þunglyndið mitt. Ég
myndi miklu frekar vilja lifa án þess.
En það hefur samt sem áður gert mig
að þeirri manneskju sem ég er í dag.
Og við hana er ég bara sátt.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Lady Gaga vill fleiri
borgarstjóra eins og Jón
Lady Gaga tók við friðarverðlaunum LennonOno
í Hörpu á þriðjudaginn. Yoko Ono og Jón Gnarr
borgarstjóri afhentu henni verðlaunin. Lady Gaga
sagði að ræða Jóns Gnarr hefði hreyft við sér og að
fleiri borgarstjórar eins og hann
ættu að vera til í heiminum.
Borgarstjóri mætti í búningi
Obi Wan Kenobi
úr Star Wars til
verðlaunaaf
hendingar
innar.
Góð vikA
fyrir
Jón Gnarr borgarstjóra
Slæm vikA
fyrir
Ara Kristin Jónsson, rektor HR
Ég mun aldrei geta sagst vera
ánægð með þunglyndið mitt.
Ég myndi miklu frekar vilja
lifa án þess.
Búsáhaldaterroristarnir
Björn Bjarnason varpaði sprengju í net-
heima þegar hann bloggaði um gildi for-
virkra rannsóknarheimilda sem hefðu
getað komið í veg fyrir árás búsáhalda-
fólks á Alþingi. Allt varð brjálað.
Björn Bjarnason afhjúpar enn og aftur að
hann gerir engan greinarmun á mótmælend
um og hryðjuverkamönnum. Lesið niðurlag
á greininni. Ég fékk fyrst á mig stimpilinn
hryðju verkamaður þegar ég var talsmaður
fyrir Saving Iceland frá fólki með áþekkan
þankagang og Björn. Gleymum ekki að
öfga fólk eins og Björn hefur enn áhrif í Sjálf
stæðisflokknum.
Birgitta Jónsdóttir
Guð minn góður. Hulunni svipt af hugsunar
hætti þessa manns og við blasir hrollvekjandi
sjón.
Sigríður Rut Júlíusdóttir
Blautir, fasískir draumar Björns Bjarna
sonar eru hér enn á ferðinni. Það var nú
sterkur orðrómur um að njósnað væri um
mótmælendur veturinn 2008 og 2009. Er
lögregluríki Björns á næstu grösum? Gera
kjósendur Flokksins sér grein fyrir hverjir eru
með völdin á bak við tjöldin?
Lára Hanna Einarsdóttir
HeituStu kolin á
Samkvæmt BB er ég hryðjuverkamaður...
Fríða Garðarsdóttir
Herör gegn hlandhausum
Íbúi í miðborginni fékk sig fullsadd an
af skrílslátum sukkara um helg ina og
vatt sér nakinn út með sveðju á lofti og
flengdi durta sem köst uðu af sér vatni
á svefnherbergisglugga hans.
Tek fram að ég bý ekki í kjallara og á ekki
frumskógasveðju, Einn stuðbolti var reyndar
að æla hérna fyrir utan í nótt .
Halldór Bragason
Sem íbúi miðborgarinnar stend ég 100%
með frumskógarsveðjumanninum. Það þarf
að rassskella þessa hlandhausa.
Atli Geir Grétarsson
Ekki mæli ég ofbeldi bót og ekki heldur við
brögðum mannsins sem fór út á adamsklæð
um og flengdi þrjá drukkna óþrifamenn sem
migu á svefnherbergisgluggann hans. En
viðbrögð lögreglunnar eru athyglisverð. Hún
handtekur húseigandann en sleppir þeim
sem migu og brutu líka rúðu í útidyrunum.
Vilt þú, lesandi góður, láta þrjár fyllibyttur
míga á gluggann yfir rúminu þínu?
Sigurður G. Tómasson
Mynd Vefur
Reykjavíkurborgar.
Dalahringur er nýr og bragðmildur hvítmygluostur.
Lögun ostsins gerir það að verkum að hann þroskast
hraðar en aðrir sambærilegir mygluostar á markaðnum.
16 fréttir Helgin 12.-14. október 2012 vikunnar