Fréttatíminn - 12.10.2012, Side 18
18 fréttir vikunnar Helgin 12.-14. október 2012
U mræður um kvenfyrirlitningu snúast gjarnan um aðdáun land-ans á Agli Einarssyni líkams-
ræktarrithöfundi. Eins og flestir vita
hefur Egill meðal annars unnið sér það
til frægðar að gera smellið grín að svert-
ingjum og djóka með hina bráðfyndnu
samfélagsplágu, nauðgun.
Þegar hið óupplýsta nauðgunarmál
gegn Agli kom upp í fyrra lauk gamninu
mjög skyndilega. Fyrirhugaðir sjónvarps-
þættir voru teknir af dagskrá og bækur
um góða siði (?) voru faldar á bak við túr-
istabækur og prjónabæklinga. Þetta var
vandræðamál því svo margir höfðu tekið
þátt í leiknum. Bókaforlög, símafyrir-
tæki, fjölmiðlar og styrktar- og líknar-
félög höfðu hlegið með rasshausagríninu.
Allir höfðu gleymt að það er ekki fyndið
að djóka með nauðgun.
Nýjasta viðbótin í þá ódrepandi
hnakkavellu sem ferill Egils er orðinn
er sú að nú ætlar framleiðslufyrirtækið
Stórveldið ehf. að sjá til þess að þættirnir
sem fóru aldrei fóru í loftið á Stöð 2 verði
frekar sýndir í bíó. Þeim mun áreiðanlega
takast að skila verkinu með hagnaði. Ef
ekki þá var þeim bara nær að veðja á Egil
til að byrja með. Það er ekki eins og það
hafi verið eitthvert leyndarmál hvað gull-
dreng rasshausanna finnst vera fyndið.
Mamma þín er hóra – djók!
Þetta væri að áreiðanlega mun fyndn-
ara ef „húmor“ Egils væri ekki svona
útbreiddur og samþykktur. Til er fólk
sem beinlínis gerir út á púkalegar og
illgjarnar andfemínískar skoðanir.
Gulldrengirnir eru víða. Egill er bara
sá frægasti og mest glansandi af þeim.
Hinir eru fjölmargir, og þeir eru á yfir-
borðinu sumir hverjir ósköp venjulegir
menn.
Þessir menn hafa áhrif. Þeir skrifa
í blöðin, þeir kenna börnunum okkar
og sumir eru vinsælir listamenn. Þeir
eru pabbar og afar. Þú þekkir einn, það
þekkja allir að minnsta kosti einn. En
það er ekki heldur eins og gulldreng-
irnir missi vinnuna eða þurfi að biðjast
afsökunar á því að kalla fólk í mannrétt-
indabaráttu ógeðslegum hlutum. Nei,
þeim er hampað sem mönnum sem
þora. Mönnum sem láta ekki pólitíska
rétthugsun (já, þessari sömu og gerir
kröfu um að við séum ekki rasistar og
fífl) tefja sig í vegferð sinni að beittri
samfélagsrýni.
Þú mátt það ef þú ert vinsæll
Tökum sem dæmi eðlisfræðikennarann
knáa sem lét hafa eftir sér að femínisti
væri „móðursjúk“ sem dauðlangaði í
nauðgun. Hann fékk jú áminningu en
yfirmaður hans sagði samt að hann
hefði ekki miklar áhyggjur því þetta
væri jú „vinsælasti kennari skólans.“
Skítt með að kennarinn sé svo illa upp-
lýstur að hann útvarpi skammlaust
hatursfullum skoðunum og fordómum:
„Feministar hafa engan áhuga á jafn-
rétti, þær vita ekki einu sinni hvað það
er, þær vilja bara drottna og deila í krafti
kynfæranna.“
Af hverju er þetta ásættanlegt tal?
Er svona tekið á málum sem varða tja...
samkynhneigða? Það er eins og mig
rámi í skylt mál sem fékk ansi ólíka af-
greiðslu. Af hverju hefur skólastjórn-
andi ekki áhyggjur af þessu?
„Hann á erindi við þjóðina“
Gulldrengir á borð við Egill Einarsson
munu halda áfram að dúkka upp í út-
varpsþáttum Auðuns Blöndal og í af-
urðum Stórveldisins. Á sama hátt mun
fólk með áþekk viðhorf halda áfram að
kenna börnum ensku og stærðfræði,
sitja á þingi eða reyna að fylla bóka- og
kvikmyndasafnið okkar af körlum sem
finnst fyndið að djóka með kvenhatur
og rasshausa. Egill er minnisvarði
þessa samfélags, það ól hann af sér og
elskar hann. Þetta er samfélag notar
frasa eins og að sjá „skratta í hverju
horni“ til þess að hafna gagnrýni og
gagnsæi um leið og það réttlætir
sitt eigið sinnuleysi.
Mér sýnist því vera ágætis
ástæða fyrir því að Egill Ein-
arsson er ennþá á sjóndeildar-
hringnum. Það lítur nefnilega
út fyrir að hann eigi ennþá fullt
erindi við þjóðina.
10
milljarða fjárfesting
er á teikniborðinu hjá
Norðuráli á Grundar-
tanga á næstu fimm
árum. Stefnt er að því
að auka framleiðslu um
allt að fimmtíu þúsund
tonn af áli á ári.
Vikan í töluM
3690
Toyota-bílar verða innkallaðir hér á landi
vegna galla. Um er að ræða Toyota-bíla frá
árunum 2006-2008.
Gulldrengirnir okkar eru víða
V i ð H o r f H e l g u Þ ó r e y j a r j ó n s d ó t t u r
91
prósent
munur var
á hæsta
og lægsta
verði á
þjónustu við dekkja-
skipti á stórum jeppa,
samkvæmt könnun ASÍ
sem kynnt var í vikunni.
Launamunur kynjanna óþolandi
Kynbundinn launamunur er algerlega
óþolandi, segir Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra. Hún ræddi launamun-
inn við setningu þings BSRB. Ný könnun
sýnir að launamunur kynjanna, meðal
félaga BSRB, er að meðaltali rúm 13
prósent.
Fær bætur vegna gæsluvarðhalds
Íslenska ríkinu ber að greiða manni
rúmar tvær milljónir króna vegna gæslu-
varðhaldsvistar sem hann sætti. Hann
var einn þeirra sem voru ákærðir vegna
skotárásar í Ásgarði í Reykjavík en var
sýknaður af ákærum.
Þriggja ára fíkniefnadómur
Þrír karlmenn á þrítugsaldri, sem teknir
voru við komu frá Póllandi í apríl, voru
dæmdir í þriggja ára fangelsi hver í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innflutning
á 8,5 kg af amfetamíni.
Grunaður um nauðgun á Selfossi
36 ára gamall karlmaður er grunaður
um að hafa nauðgað sextán ára stúlku
eftir dansleik á Selfossi aðfararnótt
sunnudags. Hann var handtekinn í
Reykjavík en látinn laus að yfirheyrslu
lokinni.
Friðarsúlan í Viðey tendruð
Friðarsúlan í Viðey var tendruð við
hátíðlega viðhöfn á þriðjudagskvöld.
Yoko Ono kom og hélt stutta ræðu. Um
1800 manns lögðu leið sína til Viðeyjar.
Friðarsúlan er tendruð 9. október ár
hvert, á fæðingardegi John Lennon. Hún
logar til 8. desember, sem er dánar-
dægur hans.
Sýni tekin úr öllum kúabúum
Matvælastofnun ætlar á næstu dögum
að kalla eftir sýnum frá öllum kúabúum
landsins vegna smitandi sjúkdóms,
barkabólgu, sem greindist á Egilsstaða-
búinu á Völlum.
Arkitektaverðlaun
Arkitektarfélag Íslands hefur tilnefnt
Kaffi Björk í Lystigarðinum á Akur-
eyri, Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús
í Reykjavík, bensínstöðina Stöðina í
Borgarnesi og Nýja bíó í Reykjavík til
Evrópusambandsverðlauna í samtíma-
byggingarlist 2013.
14
milljóna hagn-
aður varð
af rekstri
Mylluseturs
ehf., sem á og rekur
Viðskiptablaðið, í fyrra.
Árið áður hagnaðist
félagið um 20,9 milljónir
króna. Myllusetur er að
stærstum hluta í eigu
Péturs Árna Jónssonar.
66
daga var sími Sigurðar
Einarssonar, fyrrum
stjórnarformanns
Kaupþings, hleraður á
vordögum ársins 2010.
Það var sérstakur
saksóknari sem hleraði
síma Sigurðar
í tengslum
við A-Thani
málið.
Helga Þórey jónsdóttir veltir vöngum yfir því að egill einarsson, gillzenegger, sé á leið í bíó.
44
prósent netnotenda hér á landi
tengjast netinu með farsíma eða
snjallsíma, samkvæmt rannsókn
Hagstofu Íslands. Þar af tengjast
45 prósent netinu þannig daglega.
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Ný ávöxtunarleið með stighækkandi vöxtum
Sparnaður: Vaxtaþrep 30 dagar
Vaxtaþrep 30 dagar er nýr bundinn óverðtryggður innlánsreikningur og hækka
vextirnir í þrepum eftir fjárhæð innistæðunnar.
Þú getur stofnað Vaxtaþrep 30 dagar í Netbankanum eða í næsta útibúi Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar á islandsbanki.is
Ársvextir skv. vaxtatöflu 22.09.12: Vextir eru stighækkandi eftir innstæðu.
Fáðu allt að
4,7% vexti
Ný
sparnaðarleið
Úttektir af reikningnum þarf að til-
kynna með 30 daga fyrirvara en á móti
eru vextirnir hærri en á almennum
óbundnum innlánsreikningum og eru
þeir greiddir út mánaðarlega inn á
ráðstöfunarreikning að eigin vali.
Vaxtaþrep 30 dagar hentar því þeim
sem vilja örugga og háa ávöxtun en
jafnframt að innistæðan sé laus með
skömmum fyrirvara.
0–5 m.kr. 5–20 m.kr. 20–75 m.kr. +75 m.kr.
3,8%
4,1%
4,4%
4,7%
5,0%
4,5%
4,0%
3,5%
3,0%