Fréttatíminn - 12.10.2012, Side 50
38 bjór Helgin 12.-14. október 2012
Bjór Vörur frá Borg Brugghúsi hafa notið mikilla Vinsælda frá stofnun þess
V
iðtökurnar hafa verið mjög
jákvæðar. Við höfum haft
það að leiðarljósi að kynna
fyrir fólki hvað bjór er og getur
verið – kynna nýjar vörur fyrir
landanum og hafa gaman í leiðinni,“ segir
Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari hjá
Borg brugghúsi.
Uppgangur Borgar hefur verið athyglis-
verður síðan það var sett á stofn innan Öl-
gerðarinnar vorið 2010. Tólf bjórar hafa þegar
verið settir á markað og tveir til viðbótar eru
á leiðinni á næstunni. Íslenskir bjórunnendur
hafa tekið þessari viðbót á markaðinn vel og
hafa bruggmeistarar Borgar ekki undan að
sinna eftirspurninni.
Bríó gaf tóninn
Sturlaugur Jón er nýorðinn 31 árs og er
menntaður bruggmeistari frá Bandaríkjun-
um; hann lauk diplómanámi í ölgerðarvísind-
um og ölgerðarverkfræði nánar til tekið. Áður
en hann hélt út í nám hafði hann lengi fengist
við áhugabruggun.
Það orð fer oft af Bandaríkjunum að bjórinn
þar í landi sé ekki upp á marga fiska. Stur-
laugur er allsendis ósammála. Hann segir að
víðast hvar í Bandaríkjunum sé rótgróin og
rík hefð fyrir bruggun á smáum skala, litlum
og forvitnilegum brugghúsum. „Staðreyndin
er sú að Bandaríkin hafa verið mest spenn-
andi staður fyrir bjór síðustu þrjátíu árin,“
segir hann.
Sturlaugur hóf störf hjá Ölgerðinni árið
2009 eftir að hafa lokið námi. Hann var settur
yfir Borg árið 2010 og fyrsti bjór brugghúss-
ins, Bríó, kom á markað í maí það ár. Bríó var
sérstaklega hannaður og bruggaður fyrir Öl-
stofu Kormáks og Skjaldar og fyrst um sinn
var hann bara fáanlegur úr krana þar á bæ.
Um síðustu áramót hófst framleiðsla á Bríó í
dósum og er hann nú fáanlegur víðast hvar í
Vínbúðunum. Bríó hefur í tvígang hlotið virt
erlend bjórverðlaun í flokki pilsner-bjóra eins
og fjallað er um annars staðar á síðunni. „Það
var mjög ánægjulegt,“ segir Sturlaugur.
Hundrað prósent handvirkt brugghús
Síðan Bríó fór á markað hafa Sturlaugur,
Valgeir Valgeirsson, sem hóf störf hjá Borg í
fyrrahaust eftir að hafa verið bruggmeistari
í Ölvisholti, og Guðmundur Mar Magnússon
sent frá sér hvern bjórinn á fætur öðrum. Á
næstunni eru væntanlegir bjórar númer 13
og 14.
„Við erum að leggja lokahönd á þá. Já,
þetta er orðinn ágætis fjöldi á þessum stutta
tíma, tveimur og hálfu ári,“ segir Sturlaugur
stoltur.
Sturlaugur og félagar sinna framleiðslu
Borgar frá a til ö. Þeir skapa bjórana og sjá
um framleiðsluna. „Það fer mikil vinna í þetta
enda er Borg hundrað prósent handvirkt
1.
Bríó
Fyrsti
bjórinn
frá Borg.
Pilsner-bjór
sem hlotið
hefur erlend
verðlaun.
2.
Austur
brúnöl
Mildöl sem á
rætur sínar
að rekja
til Bret-
lands. Var
framleitt
fyrir Austur
steikhús.
3.
Úlfur
India Pale
Ale sem
hlotið
hefur erlend
verðlaun.
4.
Bjartur
Skemmti-
legur blond-
bjór.
5.
Október
Október
hefur
appelsínu-
kopar-
rauðan lit og
maltríkan
ilm.
6.
Skógar-
púki
Gerður úr ís-
lensku byggi
og sérlag-
aður fyrir
landsfund
kornræktar-
bænda
2010.
7.
Stekkjar-
staur
Fyrsti jóla-
bjór Borgar
– rauðleitt
brúnöl sem
passar
vel með
jólamatnum.
8.
Surtur
Imperial
Stout. Þykkt
og þolgott
öl.
9.
Benedikt
Páskabjór í
belgískum
stíl.
10.
Snorri
Bruggaður
úr innlendu
byggi og
krydd-
aður með
alíslensku,
lífrænu
blóðbergi.
11.
Sumarliði
Fyrsti þýski
hveitibjórinn
sem fram-
leiddur og
seldur er á
Íslandi.
12.
Lúðvík
Doppelbock-
bjór í tilefni
Októberfest
2012.
13.
Myrkvi
Væntanleg-
ur um næstu
mánaðar-
mót. Portari
sem krydd-
aður er með
kaffi frá
Kaffismiðju
Íslands.
14.
Giljagaur
Jólabjór
sem mun
ylja fólki um
hjartaræt-
urnar.
Ferskir vindar á bjórmarkaði
Tvö og hálft ár eru
liðin síðan Borg
brugghús var
sett á stofn innan
Ölgerðarinnar. Tólf
bjórar hafa komið
á markaðinn og
tveir til viðbótar
eru á leiðinni.
Tveir þeirra hafa
hlotið virt erlend
verðlaun og
íslenskir neyt-
endur hafa tekið
bjórunum opnum
örmum. Að baki
þessari velgengni
eru bruggmeistar-
arnir Sturlaugur
Jón Björnsson og
Valgeir Valgeirs-
son.
Valgeir Valgeirsson og Sturlaugur Jón Björnsson eru bruggmeistarar Borgar.
Þeir bera ábyrgð á mörgum frábærum bjórum sem komið hafa á markaðinn hér á
landi síðan 2010. Ljósmynd/Hari
Bjórarnir frá Borg
Hlutverk
Borgar
I Að kynna nýjar og spennandi
bjórtegundir fyrir
íslenskum bjór-
áhugamönnum.
II Að kynna fyrir íslenskum
neytendum hversu
góður kostur bjór
er með hvers konar
mat og notagildi
hans í ýmsa
matargerð.
III Að gera til-raunir með
íslenskt hráefni
og notkun þess til
bjórgerðar.
IV Að stuðla að bættri
bjórmenningu til
skemmri og lengri
tíma.
Bríó fær gull í WBC
2012
Bríó hlaut gullverðlaun í flokki þýskra
pilsnera á World Beer Cup í Kaliforníu
í vor. Pilsnerflokkurinn er einn stærsti
flokkur keppninnar. World Beer Cup er
stærsta og virtasta bjórkeppni heims.
Hún fer fram á tveggja ára fresti og
að þessu sinni kepptu 799 bruggverk-
smiðjur frá 54 löndum með samtals
tæplega fjögur þúsund bjóra.
Bríó fær gull í WBA
2012
Bríó sigraði í flokki pilsnera á World
Beer Awards 2012 á dögunum. Bríó
fetaði þar með í fótspor Egils Gull frá
árinu 2011 með því að landa bæði
Evrópumeistaratitli og svo heims-
meistaratitil í framhaldi.
Úlfur fær gull (EUR) í
WBA 2012
Í sömu keppni hlaut Úlfur titilinn
Europe‘s best IPA (india Pale ale), en
IPA er einn þeirra stíla sem handverks-
brugghús leggja hvað mestan metnað
í víða um veröld þykir því frábær
viðurkenning.
Margverðlaunuð Borg
brugghús,“ segir Sturlaugur.
Drykkjumenning Íslendinga virðist hafa
breyst síðustu ár. Sérhæfðari bjórar eins
og ykkar bjórar njóta greinilega mikilli
vinsælda. Þið hljótið að hafa orðið þessa
varir?
„Jú, þetta virðist njóta vinsælda. Við
höfum alla vega aldrei náð að halda í eftir-
spurn eftir vörum okkar, enda er fram-
leiðslugetan líka mjög takmörkuð. En við
höfum gaman af að gera eitthvað öðruvísi
en aðrir og fólk hefur tekið því vel.“
Tilraunir með taðreykt malt
Eitt af því sem skapar sérstöðu Borgar
eru tilraunir með ný hráefni. Þar ber
kannski hæst bjórinn Snorra sem einungis
er seldur í Fríhöfninni. „Hann er gerður
úr hundrað prósent íslensku byggi og
kryddaður með blóðbergi úr Aðaldal.
Þetta er það næsta sem hægt er að komast
alíslenskum bjór. Um þessar mundir erum
við að gera tilraunir með taðreykt malt.
Það er draumur sem ég hef gengið með í
magnum í mörg ár.“
Framtíðin hjá Borg brugghúsi er björt að
sögn Sturlaugs. „Við munum dæla út enda-
laust af nýjum og spennandi bjór svo lengi
sem við fáum tækifæri til þess. Markmið
okkar hefur verið að kynna fjölbreytileika
bjórsins og búa til bestu bjórana. Ég held
að við höfum staðið okkur ágætlega.“