Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 76
Margrét Árnadóttir er hönnuður mánaðarins
á Icelandair hótel Reykjavík Natura. Margrét
hannar undir nafninu M-Design en hún hefur
starfað í yfir sextíu ár við hönnun og fram-
leiðslu á ullarvörum.
Í dag, föstudag, klukkan 17 verður tísku-
sýning á Hótel Natura þar sem fólk getur
kynnt sér M-Design. Auk
tískusýningar verður
hönnuðurinn á staðn-
um til að segja frá
hönnun-
inni
og
svara
spurn-
ingum
ásamt því sem
hægt verður að
skoða og prófa
vörurnar.
M-Design
mun kynna
hina nýju
hönnun sína
úr íslenskri
ull ásamt fylgi-
hlutum sem bera
þess merki að vera
blanda af hefð-
bundinni hönnun
með nýtískulegu
ívafi. Margrét
Árna hefur
fengið aðstoð
barnabarns
síns, Ragnheið-
ar, og saman
hafa þær hann-
að föt fyrir alla
aldurshópa. Nýj-
asta línan þeirra
samanstendur
meðal annars af
peysum, húfum,
vettlingum, legghlífum, herðaslám, treflum
og sjölum. Frekari upplýsingar um M-De-
sign er að finna á www.cold.is.
Í takt við tÍmann Steingerður Sonja ÞóriSdóttir háSkólanemi
Kvenleg um helgar – gauraleg á virkum dögum
Steingerður Sonja Þórisdóttir er 23 ára nemi í skapandi skrifum við Háskóla Íslands. Hún er mikil félagsvera og
er dugleg að fara niður í bæ um helgar. Annan hvern þriðjudag stendur hún fyrir pöbbkvissi á skemmtistaðnum
Dolly ásamt vinum sínum.
Staðalbúnaður
Ég hef ekki mikinn áhuga á tísku en mér
finnst föt almennt samt alveg frábær og
held að ég ætti erfitt með að fúnkera
félagslega án þeirra. Ég er með smá und-
arlegan fatasmekk því um helgar klæði
ég mig mjög kvenlega en frekar gaura-
lega á virkum dögum. Um daginn lýsti ég
stílnum mínum á virkum dögum á þá leið
að ég klæddi mig eins og tólf ára strákur.
Þá sagði mamma mín að ekki einu sinni
tólf ára strákur myndi klæða sig svona.
Það er samt allt í lagi því hún er sjálf oft
klædd eins og einhver rumputuski og er
örugglega bara öfundsjúk. Ég elska hana
samt, aðallega af því að ég er svo góð
manneskja. Ég er stundum í magabolum
en það er bara af því mér finnst svo gam-
an að segja að ég sé „Rockin’ the bare mi-
driff“. Uppáhalds flíkin mín er polyester
gervipels úr Rauða krossinum sem er allt
of stór og lítur út eins og górilla, sem sagt
rosa flottur og klassískur. Ég fer aldrei út
úr húsi án góða skapsins.
Hugbúnaður
Um helgar á ég það til að fara niður í bæ.
Ég er að læra að skapandi skrif í Há-
skóla Íslands og þar af leiðandi neyðist ég
til djamma og drekka, þvert gegn eigin
vilja. Ég get náttúrlega ekki endað sem
eitthvað þurrt skáld sem skrifar bara
sjálfshjálparbækur eða bækur um pasta
og útsaum. Ég fer oftast á Kaffibarinn en
Dolly er að koma mjög sterkt inn. Breskir
panel-þættir eru í mestu uppáhaldi þessa
daga sem og flesta. Þar ber helst að nefna
Would I Lie to You, Q.I. og Nevermind
the Buzzcocks. Þess utan held ég mikið
upp á Seinfeld, Peep Show og South
Park. Ég fer sjaldan í bíó en stunda það
mikið að lesa söguþráðinn í bíómyndum
á Wikipedia. Uppáhaldsmyndin mín er
High Fidelity.
Vélbúnaður
Ég á tölvu. Hana nota ég mest í Reddit og
svo Facebook. Ég á LG Thrill síma sem
tekur 3D myndir. Hann fékk ég gefins frá
einhverjum Kana á Kaffibarnum. Það var
mjög furðulegt. Skemmtilegasta appið
er Appy hour en ég nota það auðvitað
ekki fyrir mig heldur til að vita hvar vinir
mínir eru niðurkomnir. Ég á 34 vini á Fri-
endster og svona kannski milli 50 og 70
í alvöru lífinu. Ég er á Instagram sem ég
nota mest bara til að taka melankólískar
svarthvítar myndir af sjálfri mér þegar
ég er leið eða af kettinum mínum þegar
hann situr asnalega. Það gerist frekar
oft enda er kötturinn minn er dýnamísk
blanda af vitleysingi og stórkostlegum
snillingi. Hann er einmitt framan á nýj-
asta Grapevine svo glæstur ferill blasir
við.
Aukabúnaður
Ég á bara tvo drauma í lífinu, heims-
frið og að smakka In-n-Out Burger. Mig
langar reyndar líka að stjórna mínum
eigin þætti í anda Man v. Food þar sem ég
er bara eitthvað að borða og allir eru að
fagna. Uppáhaldsmaturinn minn er Surf
n Turf og ostasamlokurnar sem pabbi
minn gerir. Ég get borðað mjög sterkan
mat en ég hata eggaldin. Ég borðaði ekki
fisk í fimmtán ár af því ég er svo hrædd
við sjóinn. Ég á engin áhugamál nema
kannski að hanga á Wikipedia og gráta
yfir X-factor myndböndum, það má eng-
inn vita það samt. Uppáhalds staðurinn
minn er Ísafjörður og á barnum panta ég
Chardonney hvítvín, þó ég viti auðvitað
ekkert hvað það þýðir.
Steingerður
segist klæða
sig eins og
tólf ára gamall
strákur á virkum
dögum. Mamma
hennar segir aftur á
móti að ekki einu sinni
tólf ára strákur myndi
klæða sig svona. Ljósmynd/
Hari
Hönnun á Hótel Natura
Sunddrottningin Ragnheiður Ragnars-
dóttir sýnir hér fatnað frá M-Design.
64 dægurmál Helgin 12.-14. október 2012