Læknablaðið - 01.07.1929, Qupperneq 5
LÆKNABLAÐIÐ
9i
4. Alþingi leitaði umsagnar félagsins um frv. til laga um breytingar á
berklavarnarlögunum og einkasölu á lyjum.
A8 lokum hefir formaður félagsins átt nokkurn þátt í því, að breytt var
lögum um lœkningalcyfi, til þess að tryggja betur en verið hefir, að skýrslur
lækna kæmu í tæka tíð. Var þess ekki vanþörf, þótt margir læknar séu
hirðumenn í þessu efni.
Þá hefir og stjórnin greitt fyrir læknum með staðgöngnnicnn o. fl., þegar
leitað hefir verið til hennar.
III. Lesinn upp reikningur fclagsins, endurskoðaður. Eignir eru nú kr.
2243.45. Skuldir engar, nema 335 kr., sem munu aö mestu koma inn.
IV. M. J. Magnús flutti crindi mn kynsjúkdóma. (Birtist í Lbl.).
I.andlœknir. Er á sama máli um það, að verjur mættu koma oss að
gagni. Hafði landlæknir aflað sér upplýsinga um erlendu aðferðirnar og
leist best á hinar frakknesku. Ennfremur hafði hann leitað álits Hannesar
Guðmundssonar. Bjóst við að heilbrigðisstjórnin mundi áður langt um líður
taka málið til meðferöar. Heilbrigðisstjórnin hefir óskað þéss, að Island
fengi inngöngu í al])jóða sambandið með því skilyði, að erlendir sjómenn
fái ókeypis lækningu í Reykjavík. Myndi þetta líklega komast í kring.
Níels Dungal sagði fjölda sjómanna ókunnugt um hentugar varnir. Hafði
hann álit á óbrotnu, þýsku hálff 1 jótandi lyfi, sem notað var í Hamborg
og talið er duga gegn bæði gonorrhoe og syphilis. Kvikmyndir og aðra al-
menningsfræðslu taldi hann nauðsynlega.
Hanncs Guðmundsson kvaðst vera á sömu skoðun og M. Magnús um
verjur og varnarlyf. Vildi benda á atriöi, sem miklu varðaði, þ. e. hve erfitt
er að útvega sjúkl. spítalapláss. Þannig hefði það komið fyrir hjá sér, að
sjúkl., sem fengið hafði upplýsingarblöð og gekk til læknis smitaði 3 menn
á heimili sínu. Veitti alls ekki af 10 spítalarúmum hér fyrir sjúkl. með
kynsj úkdóma.
Magnús Pétursson sagði að frakkneskur sjúkl. hefði komið hingað með
bók sína frá alþjóðasambandinu og hefði Rvík verið talin meöal þeirra bæja
þar sem sjómenn gætu fengið ókeypis lækningu. Spurði hvort þetta væri
fullgert og hvert sjúkl. skyldu snúa sér.
T^andlccknir kannaðist við vandræðin með að koma sjúkl. með kynsjúk-
dóma á spítala. Landsspítalinn ætti að hæta úr þessu.
Guðm. Thoroddscn gat þess, að engin deild fyrir kynsjúkdóma yrði á
Landsspítalanum. Slíkir sjúkl. yrðu lagðir inn á lyflæknisdeildina. Ekki
væri heldur enn ráðið fram úr því, hvernig hagaö yrði lækningum sérfræð-
inga á Landsspítalanum, en það myndi reynt að ráða svo fram úr því sem
pláss og atvik leyfðu.
M. Magnús bar þessa tillögu fram:
„Læknaþingið endurtekur áskorun sina um að heilbrigÖisstjórnin gangist
fyrir þvi, að koma í framkvæmd þeim ráðstöfunum, sem samþyktar voru
um varnir gegn kynsjúkdómum á fundi félagsins 1927.“ — Samþ. í einu
hljóði.
V. Sigurður Magnússon flutti erindi um hjálp til sjúklinga, sem koma
frá hcilsuhœlum. (Birtist í Lbl.).
Guðm, Hanncsson taldi erfitt að ræða þetta mál í þetta sinn, úr því ræða
skyldi berklavarnir næsta dag. Var því umræðum frestað.
VI. Embœttai’citingamálið. Formaður skýrði frá því, að því miður hefði