Læknablaðið - 01.07.1929, Side 8
94
LÆKNABLAÐIÐ
dómsmálaráÖuneytinu unr Jretta sem annað, og vildi halda fast við tillögu
sína urn að raða umsækjendum niður.
Níels Dungal taldi þýðingarlaust að velja fleiri en eina umsókn úr og
senda til stjórnarinnar, þar sem aðeins einurn yrði veitt.
Sœmundur Bjarnhéðinsson taldi tillögurnar þýðingarlausar, því að stjórn-
in gæti haft þær að engu. Þar að auki taldi hann vafasanrt, að tillögur nefnd-
arinnar væru framkvæmanlegar. Mætti svo fara, að surnir læknar teldu sér
hag að því, að standa utan félagsins.
Magnús Pétursson sagði vel farið, að nefndin hefði þorað að hefjast
handa gegn þeirri óöld, sem nú gengur yfir, áskorunum, læknakosningum
o þvil. Vafasamt, hvort rétt sé að nefna til einn mann. Hagnaður fyrir
stéttina, þótt 2—3 væru tilnefndir. Stéttin á að hafa heimild til þess að
setja félögum sinum ákveðnar reglur, og þær geta orðið til fullra úrslita,
ef félagið er traust.
Þórður Thoroddscn. Ekki rétt, að hrapa að þessu máli. Hugsanlegt að
ungu læknarnir vildu ekki fallast á tillögurnar og settust að sem praktiser-
andi læknar i deiluhéruðunum, máske með styrk frá ríkinu. Ráðherra viss
með að beita öllum vopnum til þess að ónýta samþykt félagsins, t. d. með
því að gefa lög um kosningu lækna. Benti á nokkur atriði í tillögunum,
sem athuga þyrfti betur.
Magnús Pctursson taldi nauðsynlegt að tryggja sem allra hest fylgi lækna,
áður út i þetta væri lagt.
Bjarni Snœbjörnsson minti á, að nefndin gcrði ráð fyrir því, að sam-
þyktin yrði borin undir alla lækna landsins og vissa fengin um vilja lækna.
Ólíklegt, að yngri læknar gangi úr samtökunum, því að þeir eiga máske
mest á hættu af núverandi ástandi. Að sjálfsögðu ætti það og að vera óheim-
ilt að þiggja ríkisstyrk af stjórninni, til þess að spilla félagsskapnum.
Guðm. Tlioroddscn benti á, að heppilegt væri, áður lengra væri haldið
umræðunum, að leita atkvæða fundarmanna um það nú, hvort þeir væru
fylgjandi aðalstefnunni um nefndarskipun, eða ekki.
Valtýr Albcrtsson. Nauðsynlegt að andæfa framferði stjórnarinnar, og
taldi síst ástæðu til þess að vefengja fylgi ungu læknanna.
Nicls Dungal stakk upp á nokkrum breytingum á tillögum nefndarinnar
(orðalag o. f 1.).
Tillaga kom frá Guðm. Thoroddscn, um að greidd séu atkvæði um, hvort
men'n eru i aðalatriðum með eða móti tillögunni um embættanefndina.
Gurml. Claesscn. Vildi fresta atkvæðagreiðslu til þess er nefndartillög-
urnar væru vélritaðar og sendar fundarmönnum. Hafa 2 umræður um svo
mikið mál.
Tillaga G. Cl. var feld með 8:9 atkv.
Nafnakall um tillögu G. Th.:
Já sögðu: Katrín Thoroddsen, Guðni Hjörleifsson, Níels Dungal, Guðm.
Thoroddsen, Einar Ástráðson, Ólafur Finsen, Ólafur Helgason, Valtýr Al-
bertsson, Bjarni Snæbjörnsson, Árni Pétursson, Ólafur Þorsteinsson, Ólaf-
ur Lárusson, Sigurniundur Sigurðsson, Halklór Stefánsson, Guðm. Hannes-
son, Ólafur Jónsson, Ingólfur Gislason.
Nei sögðu: Guðm. Björnson, Sæm.undur Bjarnhéðinsson, Helgi Tómas-
son, Jón Hj. Sigurðsson.
Nokkrir greiddu ekki atkvæði.