Læknablaðið - 01.07.1929, Side 10
96
LÆKNABLAÐIÐ
krossinn hér hef'Si skrifað til SvíþjóÖar, til þess að afla sér upplýsinga
um þessa flutninga, en taldi þó vafasamt, a'Ö RauÖi krossinn yr'Öi þess megn-
ugur, að eignast sjúkraflugvél. SagÖist efast um, aÖ rétt væri að skora á
Flugfélag íslands að gera þegar í stað tilraunir með sjúkraflutning í loft-
inu, því aö enn væri svo lítil reynsla fengin hér um flugferðir, og reynslan
í fyrrasumar varla svo, að varlegt sé þegar í stað að byrja á sjúkraflutningi.
Landlœknir. Hér er ekki um annað að ræða en að skora á Flugfélagið
að sinna sjúkraflutningi, ef um verður beðið.
Umræður um bcrklavarnir.
Guðm. Hannesson. Finst landlæknir gera berklamálið alt of einfalt. Það
landið, sem veit lengst og best um veikina, er England. Erfitt er að dæma
um skýrslur. Sagði hann frá berklafaraldri hjá Indíánum í Kanada. Bráð-
asti faraldurinn stóð full 20 ár. Mest kvað að adenitis. Manndauði mestur
innan 5 ára aldurs. Af fyrstu kynslóð dóu 26,8%, af annari 32,7%, og af
þeirri þriðju 20,5%. Nú er faraldurinn að hverfa, vegna þess, að þeir
næmu hafa dáið.
VIII. Umferðatannlœknmgar. Guðm. Hanncsson flutti erindi. (Birtist
í Lbl.). Hann Ijar upp þessa tillögu:
„Fundurinn óskar þess, að heilbrigðisstjórnin athugi, hvort tiltækilegt væri
að koma á umferöatannlækningum í einni eða fleiri sýslum."
Var hún samþykt í einu hljóði.
IX. Guðm. Hannesson: Brcyting á reglum itm scrfrœðinga. í reglum
íélagsins um sérfræðinga er stjórninni heimilt að veita undanþágu frá þeim
tíma, sem heimtaður er til sérnámsins, og það hefir verið gert. En nú hefir
lika komið fyrir, að lækni, sem sótti um sérfræðingsviðurkenningu, vantaði
nokkuð upp á almennu mentunina, og stjórnin hefir, samkvæmt reglunum,
ekki leyfi til þess að stytta hann. Bar þvi fram þessa tillögu:
,,í stað orðsins „sérnámstímann", i lok 2. gr. komi: „námstímann". Var
hún samþykt með 13 atkvæðum.
Guðm. Thoroddscn benti á, að ákvæði sérfræðingareglnanna um tann-
lækna, væri orðin úrelt, samkvæmt nýsettum lögum frá Alþingi.
X. Stjórnarkosning. Kosnir voru:
Guðm. Hannesson, með 26 atkv.
Níels Dungal, með 25 atkvr.
Jón Hj. Sigurðsson, með 11 atkv.
Varamaður var kosinn Helgi Tómasson, með 11 atkv.
XI. Guðm. Hanncsson las upp erindi frá „Fclagi ísl. hjútkrunarkvcuna",
um aðstoð Læknafélagsins í kaupkröfumáli þess við landsstjórnina. Mælti
hann nokkur orð með erindinu. Sagði þetta mál alls ekki svo einfalt. Tvær
stefnur eru uppi um þetta, annarsvegar að hafa reglulega vel mentaðar hjúkr-
unarkonur, sem fá mikil laun, hinsvegar ódýrar hjúkrunarkonur, sem ekki
gera neinar stórar kröfur. Málið er ekki svo, að búast megi við að læknar
geti áttað sig á því i fljótu bragði. Vildi þvi leggja til, að málinu yrði vísað
til stjórnarinnar. G. H. vildi gera mun á hjúkrunarkonum á stærri spitöl-
um og héraðshjúkrunarkonum annarsvegar, og hjúkrunarkonum í smærri
sjúkraskýlum hinsvegar. Þar verður læknirinn aö hafa frjálsar hendur, því
að þar er ekki alstaðar vinnugrundvöllur fyrir stórlærðar hjúkrunarkonur.
Hinsvegar verður að launa þeim vel, sem mikið er heimtað af.
/